Sport

Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukku­tíma á hlaupum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mark Dowdle átti svakalegan endasprett og tókst að ná í mark áður en flautan gall eftir 102. hringinn.
Mark Dowdle átti svakalegan endasprett og tókst að ná í mark áður en flautan gall eftir 102. hringinn. @rappid.run

Heimsmeistaramótinu í bakgarðshlaupum er ekki lokið því enn er verið að hlaupa í þremur löndum eða Bandaríkjunum, Japan og Belgíu.

Bandaríkjamenn voru þó afar nálægt því að enda sína keppni því annar af þeim hlaupurum sem eru eftir hjá þeim var aðeins fimmtán sekúndum frá því að vera of seinn í markið eftir 102. hringinn.

Mark Dowdle þurfti nefnilega að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum. Ótrúlegar senur sem náðust á myndband eins og sjá má hér fyrir neðan.

Dowdle náði því rétt svo og var síðan farinn aftur út á hring 103 með Jon Noll.

Dowdle var við það að falla í jörðina eftir þennan svakalega sprett en það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvernig er hægt að taka svoleiðis sprett þegar þú ert búinn að vera að hlaupa í fjóra sólarhringa og sex klukkutíma. Það er náttúrulega ekkert venjulegt fólk að keppa í heimsmeistaramótinu í bakgarðshlaupum.

Bandaríkjamenn eru efstir í stigakeppninni en Ástralir eru enn í öðru sæti þrátt fyrir að hafa klárað eftir 87. hringinn.

Heimsmetið er 119 hringir en það verður að koma í ljós hvort þeir nái því.

Frakkar kláruðu eftir 101 hring og Bretar eftir 90 hringi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×