Tónlistarmaðurinn Avicii látinn Ingvar Þór Björnsson skrifar 20. apríl 2018 17:47 Tim Bergling var 28 ára gamall. Vísir/AFP
Sænski tónlistarframleiðandinn og plötusnúðurinn Avicii fannst látinn í dag í Muscat í Oman. Avicii, eða Tim Bergling, var 28 ára gamall. Dagens Nyheter greinir frá. Avicii var frumkvöðull þegar kom að nútíma danstónlist en hann var margverðlaunaður fyrir tónlist sína. Til að mynda hafði hann unnið til tveggja MTV tónlistarverðlauna, Billboard verðlauna og þá hafði hann tvisvar verið tilnefndur til Grammy verðlauna. Hann var nýlega tilnefndur til Billboard verðlauna fyrir plötuna Avicii (01). Hann gaf út tvær breiðskífur, True árið 2013 og Stories árið 2015, og slógu þær báðar rækilega í gegn. Fjölmiðlafulltrúi hans, Diana Baron, segir í yfirlýsingu að hann hafi fundist látinn í Muscat í Oman síðdegis í dag. Þá segir hún að fjölskyldan sé harmi slegin og biður alla um að virða friðhelgi einkalífs þeirra á þessum erfiðu tímum. Avicii hætti að koma fram á tónleikum árið 2016 sökum veikinda sem mátti rekja til mikillar drykkju. Hann hélt þó áfram að semja tónlist. Ekki liggja fyrir upplýsingar um dánarorsök.
Andlát Óman Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Sjá meira