Sögulegur sigur stjórnarandstöðunnar í Malasíu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. maí 2018 23:56 Mahathir Mohamad er 92 ára og verður þar með elsti forsætisráðherra í heimi. vísir/getty
Fyrrverandi forsætisráðherra Malasíu, Mahathir Mohamad, vann sögulegan sigur í þingkosningum sem fram fóru í landinu í dag. Bandalag hans sem myndað var gegn ríkisstjórn landsins fékk 115 sæti á malasíska þinginu en 112 sæti þarf til að geta myndað ríkisstjórn. Mahathir, sem er 92 ára gamall og þar með elsti forsætisráðherra í heimi, náði með bandalagi sínu að sigra Barisan Nasional-bandalagið sem hefur verið við völd í Malasíu í meira en 60 ár, eða allt frá því að landið fékk sjálfstæði frá Bretlandi. Mahathir var hættur afskiptum af stjórnmálum þegar hann ákvað að bjóða sig fram gegn fyrrum samstarfsmanni sínum, fráfarandi forsætisráðherra Najib Razak. Eftir að úrslitin voru ljós sagði Mahathir að hann væri ekki að leita eftir hefndum heldur vildi hann hans koma á lögum og reglum í landinu á ný. Mahathir var eitt sinn meðlimur í Barisan Nasional-bandalaginu en sagði sig úr því árið 2016 eftir að Najib var sakaður um að hafa stungið 700 milljónum dollara í vasann úr einum af fjárfestingarsjóðum ríkisins. Mahathir sagði að hann vildi ekki tengjast bandalagi þar sem spillingin grasseraði en Najib neitaði öllum ásökunum og var hreinsaður af þeim af malasískum yfirvöldum. Málið er þó enn til rannsóknar í öðrum löndum og hefur Najib verið sakaður um að þagga málið niður í Malasíu með því að reka tiltekna embættismenn.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira