Þungir dómar fyrir leigumorð í Noregi Birgir Olgeirsson skrifar 4. júní 2018 15:48 Í niðurstöðu dómsins kemur fram að morðið hafi verið hrein og klár aftaka sem var skipulögð af mönnunum fjórum. Vísir/Getty
Fjórir menn hlutu þunga dóma í Noregi í dag vegna Aqwwl Shahzad sem var skotinn til bana af leigumorðingja við bensínstöð nærri at Ensjø-lestarstöðinni í Osló árið 2012. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að morðið hafi verið hrein og klár aftaka sem var skipulögð af mönnunum fjórum. Sá sem hlaut þyngsta dóminn heitir Zulqurnain Zahoor, 31 árs, en hann var dæmdur til nítján ára fangelsisvistar. Portúgali var þar að auki dæmdur til 11 ára fangelsisvistar fyrir að hafa skotið Shahzad til bana en hann var sýknaður af ákæru um að hafa reynt að myrða vin Shahzad sem sat í bíl fyrir utan bensínstöðina. Tveir til viðbótar voru svo dæmdir til 13 og 16 ára fangelsisvistar fyrir að hafa komið að því að skipuleggja morðið.Greint er frá því á vef norska dagblaðsins VG að lögreglan taldi morðið hafa verið þaulskipulagt og að þeir sem stóðu að baki hefðu lagt gildru fyrir Shahzad. Portúgalinn sagðist hafa verið í mikilli skuld við Zahoor vegna fíkniefnaneyslu og sagðist hafa tekið boðinu um að myrða Shahzad gegn greiðslu til að geta greitt upp skuld sína. Portúgalinn benti ítrekað á Zahoor og sagði hann höfuðpaurinn í málinu. Hann sagðist hafa átt að fá á bilinu fimm til sex þúsund evrur fyrir morðið, en það eru um 614 þúsund til 737 þúsund íslenskar krónur miðað við gengi dagsins í dag. Dómarinn spurði hvort hann hefði náð að greiða upp skuldina með morðinu, en Portúgalinn svaraði því að hann hefði skuldað Zahoor um 15 til 20 þúsund evrur.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira