Leita manns vegna líkfundar í tunnu Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. júní 2018 06:18 Ástralska ögreglan vill ná tali af Zlatko Sikorsky NEWS Corp AU
Ástralska lögreglan leitar nú manns sem grunaður er um að hafa myrt unga stúlku. Lík hennar fannst í tunnu á palli bíls sem talinn er vera í eigu mannsins. Talið er að maðurinn, Zlatko Sikorsky, kunni að vera vopnaður og hefur lögreglan sagt almenningi að vera á varðbergi. Þeir sem kunni að rekast á hann eigi að forða sér og hringja í neyðarlínuna. Leitin hófst á miðvikudag þegar lögreglunni barst tilkynning um svartan pallbíl, sem skilinn hafði verið eftir í íbúðarhverfi sunnan af borginni Brisbane. Við leit í bílnum fannst tunna á pallinum. Ofan í henni var lík - sem talið er vera af hinni sextán ára gömlu Larissu Beilby. Ekki er þó búið að bera kennsl á líkið, því það er sagt afar illa farið eftir veruna í tunnunni.Ekkert hefur spurst til Larissu Beilby síðan 18. júní.News Corp AUFyrr um daginn hafði lögreglan heimsótt manninn í tengslum við hvarf stúlkunnar, en í samtali við Guardian segir rannsóknarlögreglumaður að þau hafi þekkst. Eftir heimsóknina er talið að maðurinn hafi stokkið upp í pallbílinn sinn og ekið burt á ógnarhraða. Vitni segja að bíll mannsins sé illa farinn; skotför á rúðunum og á vélarhlífinni. Leit stendur ennþá yfir að manninum. Hér að neðan má sjá myndband sem Guardian tók saman um málið.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Sjá meira