Brugðist við hnökrum í kosningunum í Tyrklandi Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2018 11:31 Erdogan lýsti nýju forsetaræði í Tyrklandi sem mikilli framför þegar hann greiddi atkvæði í Istanbúl. Vísir/AP
Formaður yfirkjörstjórnar Tyrklands segir að gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana vegna kvartana um hnökra á framkvæmd forseta- og þingkosninganna sem fara fram í landinu í dag. Myndbönd hafa birst á samfélagsmiðlum sem virðast sýna fjölda fólks í sama kjörklefa. Erdogan forseti segir kjörsókn mikla. Kosningarnar í dag eru þær fyrstu í Tyrklandi samkvæmt nýrri stjórnskipan sem Recep Erdogan forseti kom í gegn í fyrra. Samkvæmt henni var komið á forsetaræði þar sem forseti fer mun meiri völd en áður. Kvartanir um hnökra og misferli í kosningunum hafa borist frá austur- og suðausturhluta landsins, að sögn Kemals Klicdaroglu, formanns aðalstjórnarandstöðuflokksins, að sögn AP-fréttastofunnar. Hvatti hann starfsmenn kjörstjórnar til að virða hlutleysi. Evrópskir kosningaeftirlitsmenn hafa gagnrýnt tyrknesk stjórnvöld fyrir að banna tveimur eftirlitsmönnum að koma til landsins vegna meintrar „hlutdrægni“ gegn Tyrklandi. Búist er við því að Erdogan vinni sigur í forsetakosningunum en óvíst er hvort að flokkur hans nái einnig meirihluta á þinginu. Erdogan fullyrti að meira en fimmtíu prósent kjósenda hefðu kosið þegar hann kaus í Istanbúl í dag. Kjörstjórnir hafa þó ekkert gefið út um kjörsóknina enn sem komið er.
Tengdar fréttir Tyrkir ganga til kosninga á morgun: Næsti forseti tekur við valdameira embætti en áður Ef enginn einn frambjóðandi fær yfir helming atkvæða verður kosið á milli tveggja efstu þann 8. júlí næstkomandi. 23. júní 2018 21:00 Mest lesið Selenskí kíkti á klakann Erlent Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Fleiri fréttir Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Sjá meira
Tyrkir ganga til kosninga á morgun: Næsti forseti tekur við valdameira embætti en áður Ef enginn einn frambjóðandi fær yfir helming atkvæða verður kosið á milli tveggja efstu þann 8. júlí næstkomandi. 23. júní 2018 21:00