Hverjir eru möguleikar Íslands eftir tapið? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júní 2018 17:13 Gylfi Þór Sigurðsson eftir að hann brenndi af vítaspyrnu sinni í dag. Vilhelm
Ísland er í erfiðri stöðu á HM í Rússlandi eftir tapið fyrir Nígeríu í dag en þrátt fyrir allt eiga okkar menn enn möguleika á að komast áfram í keppninni Til þess þarf Ísland að vinna Króatíu á þriðjudag og treysta um leið á hagstæð úrslit í leik Argentínu og Nígeríu á sama tíma. Allt neðangreint tekur því mið af því að Ísland vinni Króatíu á þriðjudag.Ef að Nígería vinnur Argentínu á þriðjudag er Ísland úr leik, óháð því hvernig okkar mönnum vegnar á þriðjudag.Ef að Nígería og Argentína gera jafntefli verða Ísland og Nígería jöfn með fjögur stig og mun þá markahlutfall ráða úrslitum um hvort lið fari áfram. Ísland þarf þá að vinna að minnsta kosti tveggja (helst þriggja) marka sigur á Króatíu á þriðjudag til að komast áfram.Ef að Argentínu vinnur Nígeríu verða Ísland og Argentína jöfn með fjögur stig. Þá mun baráttan um annað sætið líka ráðast af markatölu. Eins og sakir standa nú er Ísland með eitt mark „í forskot“ á Argentínu. Ef að bæði stigafjöldi og markahlutafall liða er jöfn mun fjöldi skoraðra marka ráða úrslitum. Ef enn er jafnt mun árangur í innbyrðisviðureign liðanna ráða og því næst svokölluð „Fair Play“ stig þar sem fjöldi gulra og rauðra spjalda hafa úrslitaáhrif. Semsagt, sigur Íslands á þriðjudag mun halda vonum strákanna okkar á lífi, en margt annað þarf að ganga þeim í hag þar að auki.Staðan í D-riðli: 1. Króatía 6 stig (Markatala: 5-0) 2. Nígería 3 (2-2) 3. Ísland 1 (1-3) 4. Argentína 1 (1-4)
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Sjá meira