Erlent

Breska lögreglan rannsakar þrjú mál til viðbótar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Meint brot spanna langan tíma. Brotin eiga að hafa gerst á árunum 1996-2008.
Meint brot spanna langan tíma. Brotin eiga að hafa gerst á árunum 1996-2008. Vísir/Getty

Lögreglunni í Lundúnum hefur borist þrjár tilkynningar um kynferðisbrot sem leikarinn Kevin Spacey á að hafa framið. Þetta gera þá þrjú mál til viðbótar við önnur þrjú mál sem nú þegar sem hafa verið til rannsóknar hjá lögreglunni.

Fimm af þeim meintu brotum Spacey er gert að hafa framið eiga að hafa átt sér stað í Lundúnum á árunum 1996-2008 og eitt í vesturhluta Bretlands, Glaucester árið 2013.

Vaknaði með Spacey ofan á sér

Spacey hefur margsinnis verið sakaður um kynferðislegt ofbeldi og áreitni síðan bandarískur leikari Anthony Rapp steig fram í nóvember á síðasta ári með ásakanir á hendur Spacey. Rapp sagði frá því að hann hafi einn morguninn árið 1984 vaknað með Spacey ofan á sér. Þá var Rapp 14 ára og Spacey 26 ára.

Mánuði eftir að Rapp steig fram baðst Spacey afsökunar á framferði sínu. Að sögn leikarans hefði þetta gerst í ölæði. Hann sagðist hafa í hyggju að sækja sér viðeigandi meðferð.

Spacey hefur verið listrænn stjórnandi við leikhúsið Old Vic í ellefu ár. Talsmaður leikhússins sagði í nóvember á síðasta ári að stjórnendum þess hefðu borist 20 tilkynningar um óeðlilega hegðun Spacey í starfi. Leikhúsið hafi hvatt 14 af þessum 20 til að fara áfram með málin til lögregluyfirvalda.

Spacey hefur hlotið tvenn Óskarsverðlaun og hefur leikið í þáttaröðinni House of Cards og kvikmyndinni American Beauty.


Tengdar fréttir

Íhuga að ákæra Spacey fyrir kynferðisbrot

Saksóknarar í Los Angeles kanna nú hvort að tilefni sé til að ákæra leikarann Kevin Spacey fyrir kynferðisbrot, sem hann er sagður hafa framið á tíunda áratugnum.

Kynferðisleg áreitni áhrifamanna í Bandaríkjunum

Síðan fréttir voru fyrst sagðar þann 5. október af kynferðislegri áreitni Harvey Weinstein hafa fjölmargar konur og karlar stigið fram í Bandaríkjunum og ásakað leikara, leikstjóra, tónlistarmenn, stjórnmálamenn og aðra áhrifamenn um kynferðislega áreitni, nauðgun og ýmsa óviðeigandi hegðun í sinn garð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×