Útiloka viðgerðir á núverandi veggjum Orkuveituhússins Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 2. júlí 2018 12:25 Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi OR, segir í samtali við Vísi að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvaða leið verði farin en hann segir þó að útilokað sé að gera viðgerðir á núverandi veggjum sem hafa orðið fyrir rakaskemmdum. Vísir/Vilhelm
Enn liggur ekkert fyrir um hvaða leið stjórnendur Orkuveitunnar hyggjast velja varðandi framtíð orkuveituhússins á Bæjarhálsi en haustið 2015 uppgötvuðust rakaskemmdir og mygla í svokölluðu vesturhúsi en sú leið hefur verið útilokuð að gera viðgerðir á núverandi veggjum vesturhússins sem nú stendur autt. Í kjölfar ástandsskoðunar á húsinu gáfu verkfræðistofur upp nokkrar lausnir, þó miskostnaðarsamar séu, til að lagfæra eða endurbyggja með öllu veggina. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi OR, segir í samtali við Vísi að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvaða leið verði farin en hann segir þó að útilokað sé að gera viðgerðir á núverandi veggjum sem hafa orðið fyrir rakaskemmdum. Hann segir að það hafi ekki þótt á vetur setjandi að endursetja saman eins flókna smíð og vesturhúsið sé. Kostnaðurinn við að lagfæra veggina hefði verið um 1.500 mkr. og hefði auk þess dugað skammt því áætlaður líftími er 15 ár og þá hefði framkvæmdin tekið um 33 mánuði.Ýmsar leiðir í boði Sex leiðir hafa verið til skoðunar til lausna á vandamálinu. Ein leiðin er að klæða vesturhúsið svokallaðri „regnkápu“ úr gleri. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 1.740 m.kr. og yrði 18 mánuði í framkvæmd. Aðrar leiðir eru að reisa nýja veggi með álgluggakerfi. Það myndi kosta rúmlega 2.880 milljónir króna og tæki 33 mánuði í framkvæmd. Þá er einnig til skoðunar að rífa vesturhúsið og byggja nýtt og minna hús á grunni þess gamla. Sú leið myndi reynast kostnaðarsömust en áætlaður kostnaður er 3.20 milljónir króna og tæki 42 mánuði í framkvæmd. Önnur leið lýtur einnig að því að rífa vesturhúsið en flytja starfsemina í önnur hús á lóðinni. Það myndi kosta 2.150 milljónir króna. og tæki átján mánuði í framkvæmd.Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar greindi frá stöðu mála á blaðamannafundi síðsta haust. Til hægri á myndinni sjást dæmi um rakaskemmdir á vesturhúsinu.Aðspurður hvernig framkvæmdirnar verði fjármagnaðar svarar Eiríkur: „Það fer eftir því hvað þetta verða miklir peningar sem menn sjá fram á að þurfi að setja í þetta.“ Það er því enn óljóst hver það verður sem greiðir fyrir verkið. Eiríkur segir að þegar svona miklir fjármunir séu í húfi sé ekki gott að ana að neinu. Ákvörðunin verði að vera vel ígrunduð en að sögn Eiríks mun ákvörðunin liggja fyrir innan fárra mánaða.Stjórn OrkuveitunnarÁrsfundur orkuveitunnar var haldinn síðasta fimmtudag en á honum var kjöri stjórnar OR lýst. Aðalmenn af hálfu Reykjavíkurborgar eru: Brynhildur Davíðsdóttir, formaður, Gylfi Magnússon, varaformaður, Sigríður Rut Júlíusdóttir, Hildur Björnsdóttir (sem kemur inn fyrir Áslaugu Friðriksdóttur) og Kjartan Magnússon. Varamenn eru: Auður Hermannsdóttir, Margrét S. Björnsdóttir, Páll Gestsson, Katrín Atladóttir og Björn Gíslason. Guðjón Viðar Guðjónsson er aðalmaður fyrir Akraneskaupstað og Geir Guðjónsson er varamaður. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir er aðalmaður í stjórn fyrir Borgarbyggð og Lilja Björg Ágústsdóttir varamaður.
Tengdar fréttir Orkuveitan kaupir höfuðstöðvarnar aftur á 5,5 milljarða króna Fréttablaðið sagði frá því 7. október að ein þeirra hugmynda sem forsvarsmenn OR væru að skoða væru endurkaup á höfuðstöðvunum af Foss fasteignafélagi. 21. nóvember 2017 06:00 Orkuveitan kaupir aftur skemmdar höfuðstöðvar Þriðjungur höfuðstöðva OR er talinn skemmdur af völdum raka. OR hefur nú keypt húsin aftur af fasteignafélaginu sem hún hefur leigt af síðustu fjögur árin. 20. nóvember 2017 18:18 Tjón vegna rakaskemmda í höfuðstöðvum Orkuveitunnar nemur milljörðum króna Vesturhúsið er illa farið af rakaskemmdum og mjög dýrt að gera við það. 25. ágúst 2017 15:45 Orkuveitan greiðir milljónir á mánuði í leigu á auðu rými Orkuveita Reykjavíkur greiðir um 3,4 milljónir króna á mánuði í leigu fyrir þá fermetra sem standa nú auðir og ónotaðir vegna rakaskemmda í vesturhúsi höfuðstöðva fyrirtækisins. 9. október 2017 06:00 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Orkuveitan kaupir höfuðstöðvarnar aftur á 5,5 milljarða króna Fréttablaðið sagði frá því 7. október að ein þeirra hugmynda sem forsvarsmenn OR væru að skoða væru endurkaup á höfuðstöðvunum af Foss fasteignafélagi. 21. nóvember 2017 06:00
Orkuveitan kaupir aftur skemmdar höfuðstöðvar Þriðjungur höfuðstöðva OR er talinn skemmdur af völdum raka. OR hefur nú keypt húsin aftur af fasteignafélaginu sem hún hefur leigt af síðustu fjögur árin. 20. nóvember 2017 18:18
Tjón vegna rakaskemmda í höfuðstöðvum Orkuveitunnar nemur milljörðum króna Vesturhúsið er illa farið af rakaskemmdum og mjög dýrt að gera við það. 25. ágúst 2017 15:45
Orkuveitan greiðir milljónir á mánuði í leigu á auðu rými Orkuveita Reykjavíkur greiðir um 3,4 milljónir króna á mánuði í leigu fyrir þá fermetra sem standa nú auðir og ónotaðir vegna rakaskemmda í vesturhúsi höfuðstöðva fyrirtækisins. 9. október 2017 06:00