Óvelkomnir gestir ollu usla Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. júlí 2018 06:18 Handalögmál voru fyrirferðamikil í nótt. Vísir/eyþór
Lögreglan skarst í leikinn í austurhluta Reykjavíkur í nótt eftir að henni barst tilkynning um óvelkomna gesti í íbúði einni. Húsráðandi sagði að nokkrir einstaklingar hefðu gert sig heimakoma í húsi hans og vildu ekki fara. Mikill hiti var í fólkinu en í skeyti lögreglu segir að gestirnir séu grunaðir um eignatjón. Einn var handtekinn vegna málsins, grunaður um spellvirkin, sem og fyrir líkamsárás. Ekki fylgir sögunni hvort húsráðandinn sé þolandi mannsins eða hvernig þeim slasaða heilsast. Lögreglan fékk að sama skapi ábendingu um slagsmál í Kópavogi á ellefta tímanum í gær. Þar voru tveir einstaklingar handteknir og voru þeir fluttir í næsta fangaklefa. Þeir eru grunaðir um að hafa veist að einum manni en ekki er vitað hvernig honum heilsast eftir viðskipti sín við árásarmennina. Að sama skapi var ökumaður stöðvaður sem talað hafði í farsímann sinn án þess að nota handfrjálsan búnað. Við því er 40 þúsund króna sekt. Þegar lögreglumenn ræddu við ökumanninn þótti augljóst að hann væri undir einhvers konar fíkniefnum og var hann því fluttur á lögreglustöð. Þar voru tekin sýni úr manninum og honum leyft að halda heim að því loknu.
Lögreglumál Mest lesið „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Innlent Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Innlent Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Erlent Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Innlent Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Innlent Hátt á þriðju milljón á mánuði Innlent Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Innlent „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Innlent Mótmæli við Austurvöll Innlent Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Innlent Fleiri fréttir Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ „Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Lögsækja Reykjavíkurborg Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Ánægja með Höllu eykst Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Tveir handteknir vegna líkamsárásar og fleiri í tengslum við rán og þjófnað „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Sjá meira