Býst ekki við nýjum tillögum á aukafundi vegna stöðu heimilislausra Gunnar Hrafn Jónsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 31. júlí 2018 11:59 Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að það sé sjálfsagt að fara yfir þær aðgerðir sem þegar eru hafnar til að bæta stöðu heimilislausra og þá vonast hún til þess að minnihlutinn komi með hugmyndir að umbótum.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hafnar ásökunum fulltrúa minnihlutans um meirihlutaflokkarnir hefðu ekkert aðhafst til að bæta stöðu heimilislausra. Mikið átak sé þegar hafið til að takast á við vandann. Þá gerir Heiða Björg ekki ráð fyrir því að neitt nýtt komi fram á aukafundi um heimilislausa í borginni sem nú stendur yfir. „Það hafa ekki verið lagðar fram neinar fjármagnaðar tillögur, ekki fyrir fundinn í það minnsta. Þetta eru aðallega frekar gamlar tillögur sem hafa verið á sveimi og eru lagðar fram á ný og verða ræddar núna,“ segir Heiða Björg í samtali við fréttastofu. Áætlun um húsnæði fyrir heimilislaust fólk sé í fullri vinnslu. Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn fóru þess á leit við meirihlutann að blásið yrði til aukafundar í borgarráði vegna neyðarástands sem ríkti í málaflokknum. Í yfirlýsingu sem fulltrúar minnihlutans sendu frá sér á föstudag er meirihlutinn sakaður um „algjört aðgerðarleysi“. Það sé ábyrgðarlaust að borgarstjórn og fagráð tækju sér í sumarleyfi á meðan ástandið væri svona. Heimilislaust fólk fái ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum.Meirihlutinn hafi ráðist í ýmis úrræði til handa heimilislausum Heiða Björg segir að gamli meirihlutinn í borgarstjórn hafi í fyrra brugðist við ástandinu með því að kaupa fjölda íbúða en bætir við að líklega þyrfti að kaupa fleiri. „Við höfum auðvitað á undanförnum árum verið að gera ýmislegt. Við opnuðum nýtt neyðarskýli, gerðum samning við Barka-samtökin, höfum verið að færa okkur meira í skaðaminnkandi þjónustu, opnuðum úrræði sem við köllum „Húsnæði fyrst“ eða „Housing first“ fyrir tveimur árum og það hefur reynst vel þannig að við ákváðum í desember að fjölga þeim húsnæðisúrræðum þannig að það er ýmislegt sem hefur verið gert og margt sem þarf að gera,“ segir Heiða Björg. Hún segir að fulltrúar minnihlutans leggi fram margar ágætis tillögur en að það sé ekkert nýtt í þeim. Annars vegar sé verið að leggja fram tillögur sem séu í vinnslu og hins var gamlar tillögur sem lagðar eru fram á ný. „Þetta er ný borgarstjórn og kannski ekkert óeðlilegt að það þurfi sérstaka fundi til þess að fara yfir það með nýjum borgarfulltrúum hvað hefur verið gert og hvað er í bígerð og kannski koma þau með einhverjar hugmyndir sem hægt er að nýta og ég vona að við getum sammælst um að gera eitthvað róttækt og gott í þessum málum en þá þarf auðvitað að koma til ríkið með sinn þátt sem er þá heilbrigðisþjónustan og stuðningur við þá sem þurfa.“Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, segir að bregðast þurfi við ófremdarástandi sem ríki í málaflokki heimilislausra.vísir/stöð2Vilja koma upp hjólhýsa-og húsbílabyggð Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, segir í samtali við Fréttablaðið að önnur tillagan lúti að því að koma upp hjólhýsa-og húsbílabyggð en hin að því að íbúðir sem ekki séu í notkun verði leigðar út ódýrt. Hún segir að ófremdarástand ríki í málaflokknum enda sé félagslega íbúðakerfið í molum og biðlistar langir. Fleiri heimilislausir Aðspurð hvort vandi heimilislausra hafi breyst á undanförnum árum svarar Heiða Björg því til að tölur sýni að heimilislausum fjölgar í Reykjavík. Það sé þróun sem sjáist einnig í Evrópu. „Helstu ástæður þess að fólk er heimilislaust er áfengis og/eða fíkniefnaneysla og geðsjúkdómar. Þetta er auðvitað heilbrigðisvandi sem þarf að nálgast,“ segir Heiða Björg sem bendir á að taka þurfi á þessum vanda á forsendum heimilislausra og með virðingum fyrir lífi þeirra og ákvörðunum. Heiða Björg segir að velferðarráð verði með fund 10. ágúst þar sem farið verður vandlega yfir málaflokkinn með hagsmunaaðilum og notendum þjónustunnar. „Þar er kannski rétti vettvangurinn til að fara yfir það hvaða leiðir akkúrat eru brýnastar núna, hvaða húsnæði það er og hvers lags þjónusta það er sem við þurfum að bæta akkúrat á þessari stundu.“
Tengdar fréttir Boðar lausnir á vandamálum heimilislausra Flokkur fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur hyggst leggja fram tvær tillögur að lausn á vanda heimilislausra í borginni á fundi borgarráðs næstkomandi fimmtudag. 31. júlí 2018 06:00 Kalla eftir aukafundi vegna heimilislausra Minnihlutinn í borgarstjórn harmar það sem hann kallar "algjört aðgerðarleysi,“ í málefnum heimilislausra í Reykjavík. 27. júlí 2018 08:04 Verði að taka á vanda utangarðsfólks Minnihlutinn í borginni boðar neyðarfund hjá borgarráði vegna úrræðaleysis Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra. Formaður borgarráðs vill ganga í verkið og samþykkti að halda fundinn í næstu viku. 28. júlí 2018 07:15 Boða til aukafundar: „Heimilislausir fá ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum“ Boðað hefur verið til aukafundar í borgarráði á morgun klukkan 11. 30. júlí 2018 11:06 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira
Boðar lausnir á vandamálum heimilislausra Flokkur fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur hyggst leggja fram tvær tillögur að lausn á vanda heimilislausra í borginni á fundi borgarráðs næstkomandi fimmtudag. 31. júlí 2018 06:00
Kalla eftir aukafundi vegna heimilislausra Minnihlutinn í borgarstjórn harmar það sem hann kallar "algjört aðgerðarleysi,“ í málefnum heimilislausra í Reykjavík. 27. júlí 2018 08:04
Verði að taka á vanda utangarðsfólks Minnihlutinn í borginni boðar neyðarfund hjá borgarráði vegna úrræðaleysis Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra. Formaður borgarráðs vill ganga í verkið og samþykkti að halda fundinn í næstu viku. 28. júlí 2018 07:15
Boða til aukafundar: „Heimilislausir fá ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum“ Boðað hefur verið til aukafundar í borgarráði á morgun klukkan 11. 30. júlí 2018 11:06