Skoðun

Hulin

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Allir eiga að hafa rétt á því að sjá andlit þeirrar persónu sem þeir mæta og standa andspænis. Þannig er hægt að lesa í svipbrigði og túlka þau og átta sig á hvað einstaklingur hefur í hyggju. Þegar einstaklingur hylur andlit sitt sést ekki hver hann er, persónuleiki hans hverfur því svipbrigði hans eru ekki greinanleg. Öðrum er ómögulegt að átta sig á því hver er þarna á ferð.

Víða um heim klæðast konur búrkum og í nokkrum löndum hefur þeim nú verið meinað að láta sjá sig á almannafæri í slíkum búningi. Allmargir hafa risið upp og mótmælt banninu með þeim rökum að fólk eigi að fá að klæða sig eins og því sýnist. Það er vissulega rétt en þegar klæðnaður nær til þess að viðkomandi fái að hylja andlit sitt svo einungis sjáist í augun þá er rétt að gera miklar athugasemdir. Sjálfsagt er að fólk hylji andlit sitt á grímuböllum eða öðrum álíka skemmtunum þannig að það þekkist ekki. Annars staðar á slíkt engan veginn að líðast.

Það er dapurlegt til þess að vita að til séu menningarheimar þar sem konum er gert skylt að hylja andlit sitt og líkama þannig að einungis sjáist í augun. Með slíkum tilskipunum, hvort sem þær eru settar fram í nafni trúarbragða eða hefða, er verið að gera konur andlitslausar um leið og þær eru einangraðar.

Ef einhver hópur ætti að rísa upp og mótmæla slíku harðlega þá eru það femínistar. Það gera blessunarlega fjölmargar þeirra og tala réttilega fyrir búrkubanni í nafni kvenfrelsis. Þetta gera þær þó því miður ekki allar, reyndar er engu líkara en að sumar þeirra hafi ruglast illilega í hugmyndafræðinni. Það er beinlínis súrrealískt að horfa upp á hóp femínista víða um heim styðja hið kúgandi karlveldi sem vill skikka konur til að fela líkama sinn í búrku og hylja andlit sitt. Tilgangur þessara karldurga er að gera konur undirgefnar og einangra þær frá öðrum. Þar hafa þeir náð miklum árangri. Síst hefði verið hægt að reikna með því að femínistar kinkuðu samþykkjandi kolli yfir kúgunarhugmyndum þeirra.

Það að siður hafi tíðkast lengi í ákveðnum menningarheimum gerir hann hvorki gildan né góðan. Vilja femínistarnir, sem æsa sig svo yfir búrku­banni, virkilega að litlar stúlkur frjálsar og lífsglaðar séu einn daginn, þegar þær hafa náð kynþroskaaldri, settar í sekk og látnar hylja andlit sitt? Einhverjar þessara stúlkna gætu vissulega vanist því og jafnvel sagt opinberlega að þeim félli þessi klæðnaður í geð – sem er einmitt það sem karl­skunkar í nánasta umhverfi þeirra vilja heyra. Þar á bæ er talið æskilegast að ekki sjáist mikið til kvenna og það á heldur ekki að heyrast mikið í þeim. Þær þykja best geymdar þar sem þær eru til friðs.

Það er vissulega of mikið af boðum og bönnum í þessum heimi. Búrkubann er þó ekki af hinu illa. Það er einmitt rík ástæða til að styðja það heilshugar.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×