Einn af FIFA-svikahröppunum dæmdur í fjögurra ára fangelsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2018 09:00 Jose Maria Marin. Vísir/Getty
Fyrrum formaður brasilíska knattspyrnusambandsins er á leiðinni í fangelsi vegna spillingamála og hann þarf einnig að greiða stóra sekt og gefa eftir mikinn pening. Hinn 86 ára gamli Jose Maria Marin var formaður brasilíska sambandsins frá 2012 til 2015. Hann var einn af sjö stórlöxum hjá FIFA sem voru handteknir á hóteli í Zürich í maímánuði 2015. BBC segir meðal annars frá. Marin fékk fjögurra ára fangelsisdóm hjá dómara í Brooklyn í Bandaríkjunum en hann fékk dóminn fyrir að þiggja mútur frá markaðsfyrirtækjum í skiptum fyrir sjónvarpssamninga frá keppnum eins og Copa America.Former Brazilian Soccer Official José Maria Marin Is Sentenced to Four Years in FIFA Case / per The New York Timeshttps://t.co/jiowmHmd09pic.twitter.com/H7DS82v5fu — changeFIFA (@changeFIFA) August 22, 2018Bandaríski dómarinn Pamela Chen dæmdi og er Jose Maria Marin sá fyrsti sem er dæmdur út frá rannsóknar bandarísku Alríkisrögreglunnar á spillingamálum innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA. Marin þarf einnig að greiða 1,2 milljón Bandaríkjadala í sekt, 129 milljónir íslenskra króna, og gefa ennfremur eftir 3,34 milljónir Bandaríkjadala, 361 milljón íslenskra króna, af þeim peningum sem hann hafði eignast með ólöglegum hætti. Perúmaðurinn Manuel Burga hafði áður verið sýknaður af því að hafa tekið mútugreiðslur. Þetta eru erfiðir tímar fyrir Marin. Hann var fyrrum ríkisstjóri í Sao Paulo og á síðasta ári var hann fundinn sekur í sex af sjö ákæruliðum fyrir peningaþvætti og fjársvik í heimalandi sínu. Það er aftur á móti ekki enn búið að ákveða sekt eða fangelsvist vegna þess dóms. Jose Maria Marin er samt ekki búinn að gefast upp og lögfræðingar hans segja að hann ætli að áfrýja dómnum.Jose Maria Marin afhendir hér Lionel Messi verðlaunin sem besti leikmaður HM í Brasilíu 2014.Vísir/Getty
Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Fleiri fréttir Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Sjá meira