Stóð aldrei til að Gísli yrði í stóru hlutverki hjá Kiel á fyrsta ári Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. ágúst 2018 08:00 Gísli Þorgeir Kristjánsson fór til Kiel eftir tímabilið með FH. Vísir/Andri Marinó
Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur ekkert spilað með þýska stórliðinu Kiel á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla á öxl sem að hann varð fyrir í leik á móti ÍBV í úrslitakeppni Olís-deildarinnar síðasta sumar. Hann mun fá tíma til að ná sér af meiðslunum en Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að þar á bæ eru menn ekkert að flýta sér með þennan unga leikstjórnanda. „Við erum bara með hann í uppbyggingu eftir meiðslin og ætlum ekki að tefla á tvær hættur í þeim efnum heldur gefa okkur og honum þann tíma sem þarf til þess að hann nái fullri heilsu. Gísli Þorgeir er ungur og ekki hægt að taka neina áhættu í þeim efnum,“ segir Alfreð. Gísli var ofurstjarna í Olís-deildinni á síðustu leiktíð með FH-liðinu sem endaði í 2. sæti eftir tap fyrir ÍBV í úrslitarimmunni. Nú er hann kominn í svakalega samkeppni og stefnir í að hann spili ekki svo mikið á þessu síðasta tímabili Alfreðs með liðið. Þetta á ekkert að koma á óvart, að sögn Alfreðs, en aldrei stóð til að Gísli yrði í stóru hlutverki hjá liðinu á fyrsta ári. Meiðslin hafi þó vissulega sett strik í reikninginn. „Gísli Þorgeir hefur ótvíræða hæfileika en þarf að taka sér tíma til þess að koma sér inn í allt hér og æfa almennilega eftir að hafa náð öxlinni í lag áður en hann fer að spila með okkur,“ segir Alfreð Gíslason.
Handbolti Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Frank Mill er látinn Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti Fleiri fréttir Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Sjá meira