Skoðun

Undirskriftir til stuðnings mun hærri lífeyri aldraðra

Björgvin Guðmundsson skrifar
Eftir að síðasta grein mín um kjör aldraðra birtist í Fréttablaðinu hringdu margir til mín. Meðal þeirra sem hringdu var eldri borgari, Erla Magna Alexandersdóttir. Hún þakkaði mér fyrir greinina og allar fyrri baráttugreinar fyrir eldri borgara. En hún sagði að það væri kominn tími til aðgerða. Það þyrfti að efna til undirskriftasöfnunar og jafnvel að fara í mál við ríkið til þess að ná fram réttlæti og sanngjörnum lífeyri. Það væri ekki unnt að lifa af lífeyri almannatrygginga í dag. Það kom fram að stundum liði hún skort vegna þess hve lífeyrir TR væri naumt skammtaður. Allir hljóta að sjá að við svo búið verður ekki unað lengur.

Undirskriftasöfnun afráðin

Ég féllst á að aðstoða hana við að koma á fót undirskriftasöfnun. Hún hófst 27. ágúst og er rafræn á netinu á vegum þjóðskrár til þess að tryggja öryggi hennar. Í undirskriftasöfnuninni er lögð áhersla á að elli- og örorkulífeyrir sé alltof lágur, dugi ekki til framfærslu og þurfi að hækka. Ég tel lágmark að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja í 318 þúsund kr. á mánuði eftir skatt. Í dag er ástandið þannig, að eldri borgarar, sem eru á lægstum lífeyri þurfa iðulega að neita sér um að fara til læknis og geta ekki leyst út lyf sín. Það er hreint mannréttindabrot. Ég tel það líka brot á 76. grein stjórnarskrárinnar, þar eð þar segir að ríkið eigi að veita öldruðum og öryrkjum aðstoð, ef þurfi. Ljóst er að það þarf aðstoð, þegar eldri borgarar líða iðulega skort og geta ekki farið til læknis eða leyst út lyfin sín. Slíkt getur ekki gengið í ríki, sem vill kalla sig velferðarþjóðfélag.

Þurfa eðlilega aðild að samfélaginu

Vera kann að stjórnvöldum þyki það mikil hækkun, að lífeyrir fari í 318 þúsund kr. eftir skatt. Þessi lífeyrir er 243 þúsund í dag hjá einstaklingum. En ef lægst launuðu eldri borgarar og öryrkjar eiga að geta átt eðlilegan aðgang að samfélaginu, er þetta síst of hátt. Þetta þarf að duga fyrir brýnustu útgjöldum en auk þess fyrir tölvu, fyrir bíl og rekstrarkostnaði hans, fyrir gjöfum handa börnum og barnabörnum og fyrir afþreyingu. Þessir liðir, sem ég tel upp eru sjálfsagðir í nútímasamfélagi og aldraðir og öryrkjar eiga rétt á að taka fullan þátt í samfélaginu. Í dag fer allur lífeyrir í brýnustu útgjöldin, mat, fatnað, húsnæðiskostnað, rafmagn og hita og dugar ekki til.

Sýna þarf samstöðu

Nú ríður á að eldri borgarar og öryrkjar sýni samstöðu og taki þátt í undirskriftasöfnuninni. Með því geta þeir knúið fram eðlilega leiðréttingu á lífeyri aldraðra og öryrkja. Það er löngu tímabært að sú leiðrétting nái fram að ganga. Aldraðir þurfa að eiga áhyggjulaust ævikvöld og öryrkjar eiga einnig rétt á það góðum kjörum að þeir þurfi ekki stöðugt að kvíða morgundeginum.




Skoðun

Sjá meira


×