Sé litið til viðbragða á samfélagsmiðlum við framlagningu hennar verður ekki annað sagt en viðbrögðin séu blendin. Fáir eru til að fagna skýrslunni en þeim mun fleiri vilja efast um hæfi Hannesar til að fjalla um þetta tiltekna viðfangsefni. Og hæðast að henni sem slíkri fremur en að hún fái einhverja efnislega umræðu.
Á Twitter er maður sem kallar sig Kjartan Vído sem segir: „Það er meira rætt um Magnus Falkerup á samfélagsmiðlum en skýrslu Hannesar Hólmsteins.“ Nafnið Magnús Falkerup hefur komið upp í dreifipóstum á samfélagsmiðlum, þar sem hrekklausar sálir eru varaðar við því að þar fari harðsvíraður hakkari sem muni komast inná bankabækur þeirra sem samþykkja vinabeiðni frá þeim meinta hrappi.
Mistekist að losna undan klíkuskap og fáræði
En, þó lítt sé um efni skýrslunnar rætt á samfélagsmiðlum er þeim mun meira rætt um tilurð hennar. Jón Trausti Reynisson ritstjóri er helst á því að galið hafi verið að fá Hannes til þessa verks. Efnið sé skýr vitnisburður um vanhæfi skýrsluhöfundarins og íslenskt klíkuræði.
„Uppgjörið er fullkomnað. Helsti stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins afhendir formanni Sjálfstæðisflokksins skýrslu um hvernig útlendingar fóru illa með Íslendinga, þegar Sjálfstæðisflokkurinn var við völd og allt hrundi. Birt í fjölmiðlinum sem fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins ritstýrir, en hann var seðlabankastjóri þegar bankakerfið hrundi og skýrsluhöfundurinn er margyfirlýstur aðdáandi hans. Og reikningurinn fyrir verkið, tíu milljónir króna, sendur á okkur. Á tíu ára afmæli hrunsins,“ skrifar Jón Trausti og bætir við:
„Helsta niðurstaða skýrslunnar virðist vera að það hafi mistekist að innleiða fagmennsku, hlutleysi og trúverðugleika og losna undan klíkuskap og fáræði.“
Á Twitter tjáir sig annar ritstjóri sem heitir Þórður Snær Júlíusson og hann telur að hér sé verið að endurrita söguna. „Davíð Oddsson er nefndur 163 sinnum í skýrslu Hannesar Hólmsteins. Og Icesave 224. Hún er 211 blaðsíður. Ekkert verið að eyða miklu púðri í kaup bankanna á eigin bréfum, með eigin peningum, eða fordæmalausa dóma vegna þessa. Minnst á það einu sinni.“
Ein niðurstaða Hannesar Hólmsteins er sú að Bretar skuldi Íslendingum afsökunarbeiðni vegna þess hvernig þeir komu fram til að mynda með að setja á Ísland hryðjuverkalög.
Davíð Oddsson er nefndur 163 sinnum í skýrslu Hannesar Hólmsteins. Og Icesave 224. Hún er 211 blaðsíður. Ekkert verið að eyða miklu púðri í kaup bankanna á eigin bréfum, með eigin peningum, eða fordæmalausa dóma vegna þessa. Minnst á það einu sinni. #endursamningsögunnar
— Þórður S. Júlíusson (@thordursnaer) September 25, 2018
Hæðnislegur er tónninn
Gylfi Magnússon, dósent og fyrrverandi fjármálaráðherra, leggur út af þessu atriði í Facebook-færslu.„Ef Bretar fara að biðjast afsökunar á framferði sínu í gegnum aldirnar þá verður það mjög viðamikið verkefni. M.a. munu þeir hafa ráðist inn í vel á annað hundrað lönd (öll ríki heims nema 22 skv. einni mælingu en hún er umdeild) og áttu um 60 nýlendur. Nú svo eru það auðvitað þorskastríðin. Á móti kemur auðvitað að þeir fundu upp fótboltann og gufuvélina og Monty Python. Og menntuðu Hannes.“

Össur Skarphéðinsson er annar fyrrverandi ráðherra sem leggur orð í belg um skýrslu Hannesar á Facebook.
„Félagi Hannes Hólmsteinn dásamar einkavæðingu bankanna og fiskiauðlindarinnar sem færðu gríðarlegt fjármagn í hendur „ungra og sprækra manna í bankaheiminum“ og lofsyngur í leiðinni útrásina skömmu fyrir hrun: "...og svo fóru víkingarnir bara með þetta fjármagn út." - Ekki er að efa að hann rekur þetta rækilega í skýrslu sinni um orsakir hrunsins.“
Vill að Bjarni segi af sér
Almennt er þessi tónninn þegar litið er til viðbragða við skýrslunni. Ýmist hæðast menn að tilurð hennar og því hver skrifar hana eða eru beinlínis reiðir. Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri, sem óvænt komst í kastljós samfélagsumræðunnar í tengslum við mál Roberts Downey, birtir á sinni Facebooksíðu eftirfarandi:
Þessi skýrsla er nákvæmlega það sem var að íslenskum stjórnmálum og stjórnkerfi. Og að mörgu leyti verra en nokkru sinni.“
Hannes dæmdur fyrirfram
Einn fárra sem virðist raunverulega spenntur fyrir afurðinni og innihaldi hennar er Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður.
Sjaldan hafa jafn margir haft jafn miklar skoðanir á ritverki og höfundi þess fyrirfram,“
Og séu samfélagsmiðlar skoðaðir að teknu tilliti til viðbragða við skýrslunni hittir Björn Ingi naglann á höfuðið, sem í felst einskonar svar við spurningunni um hæfi skýrsluhöfundar.
Mjög kósí að vera svona pilsfalda-frjálshyggjumaður á Íslandi
— dagurbollason (@DagurBollason) September 25, 2018
- Kippt fram fyrir röðina til að fá æviráðningu hjá ríkinu
- Fá blank check til að skrifa bara einhverja skýrslu fyrir ríkiðhttps://t.co/VqILQr0XWi
Ætla rétt að vona að það sé búið að renna þessari Hannesar skýrslu í gegnum ritstuldarforritið Turnitin.
— María Björk (@baragrin) September 26, 2018
Það er meira rætt um Magnus Falkerup á samfélagsmiðlum en skýrslu Hannesar Hólmsteins.
— Kjartan Vído (@VidoKjartan) September 26, 2018