Klopp vill ekki vera minnst sem fyndna stjórans sem vann ekki neitt Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. október 2018 11:00 Þjóðverjinn slær oft á létta strengi vísir/getty
Jurgen Klopp segist vonast eftir því að hans verði ekki minnst sem ósigursæla en fyndna stjórans á Anfield. Hann fagnaði þriggja ára starfsafmæli sínu hjá félaginu á dögunum. Klopp kom til Liverpool í október 2015 og sagðist hann vilja vinna titil á fjórum árum. Hann þarf því að vinna titil á þessu tímabili til þess að ná því. Þjóðverjinn hefur komið Liverpool í úrslit deildarbikarsins, Evrópudeildarinnar og Meistaradeildar Evrópu en tapað öllum þremur úrslitaleikjunum. „Ég hef sagt það nokkru sinnum að ég hef ekki hugmynd hvenær við vinnum titil,“ sagði Klopp. „Ég veit ekki hvenær það verður en þangað til skulum við njóta fótboltans, heimsins og ferðalagsins.“ „Enginn vill horfa til baka eftir 10 eða 20 ár og hugsa að besti tíminn án titils var þegar Klopp var hér, hann var svo fyndinn og allt það.“ Liverpool vann síðast titil árið 2012 þegar Kenny Dalglish stýrði þeim til sigurs í deildarbikarnum. Margir telja Liverpool vera helsta keppinaut Manchester City um Englandsmeistaratitilinn. Liðin eru jöfn að stigum á toppi deildarinnar eftir átta umferður líkt og Chelsea. „Við erum líklega á okkar besta augnabliki í mjög langan tíma, en það er eins hjá nokkrum félögum og þau hafa tekið sömu skref og við. Þess vegna er þetta svona erfitt.“ „En eins og ég sagði á mínum fyrsta fréttamannafundi hér, ef einhver heldur að ég geti unnið kraftaverk þá verður framtíðin erfið, því ég get það ekki,“ sagði Jurgen Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Fleiri fréttir Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira