Markvörður þurfti að færa bílinn sinn í miðjum leik | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. október 2018 11:00 Edwards hleypur af velli. mynd/skjáskot
Preston Edwards, markvörður enska utandeildarliðsins Dulwich Hamlet, þurfti að hlaupa út af vellinum í æfingaleik á móti Crystal Palace í gærkvöldi þegar að vallarþulurinn tilkynnti að það ætti að draga burt bílinn hans. Edwards sagði frá því eftir leikinn að hann var aðeins of seinn til leiks og því þurfti hann að leggja ólöglega. Sky Sports greinir frá. Vallarþulurinn tilkynnti nokkrum sinnum að færa ætti bílinn hans og reyndi markvörðurinn nokkrum sinnum að biðla til áhorfenda um að koma því til skila að þetta væri bíllinn hans. Stuðningsmönnunum fannst þetta svo fyndið að þeir byrjuðu að syngja: „Preston, færðu bílinn þinn!“ í staðinn fyrir að hjálpa markverðinum sem þurfti svo að hlaupa út af vellinum þegar að flautað var til hálfleiks og færa bílinn. Þetta var ekki besta kvöld Edwards á ferlinum því auk þess að lenda í bílavandræðum fékk hann á sig fimm mörk á móti Palace í 5-0 tapi. Leikurinn var góðgerðarleikur fyrir Dulwich Hamlet og söfnuðust 1.000 pund í gærkvöldi sem fara í að borga leikmönnum liðsins laun. Markvörðurinn náði að færa bílinn og slapp því við væna sekt.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Fleiri fréttir Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira