Hugleiðandi sögustund með Óla Stef Sighvatur Jónsson skrifar 5. nóvember 2018 19:15
Ólafur Stefánsson tekur þátt í verkefni á vegum Reykjavíkurborgar þar sem tilgangurinn er að leiða saman íþróttafélög og eldri borgara í höfuðborginni.Fyrst haldið í Valsheimilinu Sigríður Arndís Jóhannsdóttir, verkefnastjóri á velferðarsviði hjá Reykjavíkurborg, segir að hugleiðsla og sögustund með Ólafi Stefánssyni hafi verið í boði í Valsheimilinu á dögunum og nú í framhaldi í vesturbænum. „Óli er frábær og skemmtilegur og svo gefandi, þess vegna fannst okkur svo gaman að hann vildi taka þátt í þessu með okkur,“ segir Sigríður. „Hann gerir þetta með öðrum hætti, þetta er svolítið út fyrir kassann. En það er akkúrat það sem við eigum líka að bjóða uppá, að hafa smá gleði, smá hlátur, það er líka heilsueflandi.“Ólafur Stefánsson gaf sig allan í flutning sögunnar um Óðin og Freyju.Vísir/VilhelmÓlafur flutti sögu um Óðin og Freyju úr norrænu goðafræðinni fyrir hóp eldri borgara í KR-heimilinu í morgun en Freyja er gyðja ástar og frjósemi.Ekki fyrir alla Friðgerður Hulda Jensdóttir, ljósmóðir í Reykjavík, var ein þeirra sem mætti á viðburð Ólafs í morgun. Eftir dágóða stund rölti hún þó fram á gang og hafði á orði að þetta hafi ekki alveg verið fyrir hana. Ólafur hafi staðið sig vel en framsetningin hafi verið mjög frjálsleg. Aðspurð hvort sýningin hafi verið of nútímaleg fyrir hennar smekk svaraði hún að hún hefði ekki vit á því. „En ég sé að þetta er allt annað en uppbyggjandi fyrir mig að minnsta kosti,“ sagði Hulda hlæjandi.
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira