Facebook enn og aftur á hælunum Samúel Karl Ólason skrifar 15. nóvember 2018 15:30 Forsvarsmenn Facebook halda því fram að grein NYT sé ónákvæm, án þess þó að fara út í hvað sé ónákvæmt í greininni, og í yfirlýsingunni segir einnig að Facebook hafi lengi tekið áróður Rússa og annarra alvarlega. AP/John Minchillo
Forsvarsmenn Facebook segjast ekki hafa reynt að afvegaleiða almenning í tengslum við áróðursherferð Rússa á samfélagsmiðli fyrirtækisins í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2016. Því er haldið fram í umfangsmikilli grein New York Times, þar sem einnig er sagt frá því að fyrirtækið hafi notað þjónustu ráðgjafafyrirtækis sem stýrt er af íhaldsmönnum til að veitast að aðilum sem gagnrýndu Facebook og þá jafnvel með rasískum árásum. Fyrirtækið segir frétt New York Times vera ónákvæma en hefur þó slitið tengslum sínum við áðurnefnt ráðgjafafyrirtæki sem heitir Definers Public Affairs. Blaðamenn New York Times tóku viðtöl við rúmlega 50 manns við gerð fréttarinnar og tók vinnan um hálft ár. Meðal þeirra sem rætt var við voru núverandi og fyrrverandi framkvæmdastjórar og starfsmenn Facebook, þingmenn, embættismenn og fleiri. Flestir þeirra ræddu við blaðamennina undir nafnleynd þar sem margir höfðu skrifað undir þagnarsamkomulag og aðrir óttuðust refsingar. Greinin sem varð úr þessum viðtölum kallast; „Delay, Deny and Deflect: How Facbook‘s Leaders Fought Through Crisis“, sem lauslega þýtt er „Tefja, neita og afvegaleiða: Hvernig leiðtogar Facebook börðust í gegnum krísu“. Þar er því haldið fram að Mark Zucerberg og Cheryl Sandberg, æðstu leiðtogar Facebook, hafi hundsað viðvaranir um áróður á Facebook og svo reynt að fela vísbendingar. Sérstaklega er nefnt þegar Zuckerberg sagði um haustið 2016 að það væri „klikkað“ að gefa í skyn að verið væri að nota Facebook til að hjálpa Trump að vinna kosningarnar. Blaðamenn NYT segja forsvarsmenn Facebook hafa vitað að svo væri raunin þegar Zuckerberg hélt þessu fram. Fyrrverandi öryggisstjóri Facebook, Alex Stamos, hafði þá verið að safna gögnum um aðgerðir Rússa í minnst ár. Hann er sagður hafa sagt stjórnarmeðlimum Facebook frá gögnunum sem um ræðir á fundi. Sandberg er sögð hafa orðið verulega reið og sakaði hún Stamos um að hafa kastað sér og Zuckerberg „undir rútuna“.Cheryl Sandberg, þegar hún var kölluð fyrir þingnefnd fyrr á árinu til að svara spurningum þingmanna um áróður á Facebook.Getty/Drew AngererSandberg og aðrir voru á móti því að gera niðurstöður Facebook opinberar af ótta við að Repúblikanar tækju því sem að Facebook hefði tekið stöðu með Demókrötum. Skömmu áður höfðu leyniþjónustur Bandaríkjanna opinberað þær niðurstöður að Vladimir Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega fyrirskipað áróðursherferð með því markmiði að hjálpa Trump að vinna kosningarnar. Svo bættist á vandræði fyrirtækisins þegar ljóst varð að Cambridge Analytica hefði komið höndum yfir persónuupplýsingar tuga milljóna notenda Facebook, með því að fara fram hjá reglum Facebook, og notað þau til að kosningabaráttunnar fyrir hönd Trump. Eftir það segir í grein NYT að Facebook hafi gripið til árása. Definers Public Affairs, sem sérhæfir sig í að rannsaka pólitíska andstæðinga skjólstæðinga sinna, var ráðið til að grafa undan aðilum sem voru að gagnrýna og mótmæla Facebok. Fyrirtækið bendlaði einhverja af þessum aðilum við auðjöfurinn George Soros. Facebook réð gamla refi úr stjórnmálunum í Bandaríkjunum til að tala máli þeirra í Washington og Definers dældi út neikvæðum fréttum um samkeppnisaðila Facebook eins og Google og Apple, sem reglulega voru einnig skrifaðar af miðlum eins og Breitbart.Segja greinina ónákvæma en ekki af hverju Eins og áður segir halda forsvarsmenn Facebook því fram að grein NYT sé ónákvæm, án þess þó að fara út í hvað sé ónákvæmt í greininni, og í yfirlýsingunni segir einnig að Facebook hafi lengi tekið áróður Rússa og annarra alvarlega. Starfsmönnum fyrirtækisins væri alvara að berjast af hörku gegn svokölluðum falsfréttum og annars konar misnotkun á samfélagsmiðlinum. Í yfirlýsingunni er viðurkennt að fyrirtækið hafi verið lengi að bregðast við en miklu hefði verið varið til að tryggja öryggi samfélagsmiðilsins og í að berjast gegn áróðri. Þar segir einnig að Facebook hafi slitið samstarfi sínu við Definers en ekki er heldur farið nánar út í það. Forsvarsmenn Facebook hafa á undanförnum mánuðum og jafnvel árum ítrekað verið á hælunum gagnvart ýmsum ásökunum gegn fyrirtækinu og hneykslismálum. Stemningin innan veggja fyrirtækisins mun sjaldan hafa verið verri, samkvæmt fjölmiðlum í Bandaíkjunum. CNBC segir innri könnun fyrirtækisins hafa sýnt fram á að einungis 52 prósent starfsmanna Facebook séu vongóðir varðandi framtíð fyrirtækisins. Hlutfallið var 84 prósent í fyrra. þá sögðust 70 prósent vera stolt af vinnu sinni, samanborið við 87 prósent í fyrra.This story has been 6 months in the making. It started with a question: What happened inside Facebook over the last 3 years, and what did top executives, Mark Zuckerberg and Sheryl Sandberg, do in the wake of crisis after crisis battering the company? https://t.co/N6kaDNqfj6— Sheera Frenkel (@sheeraf) November 14, 2018
Bandaríkin Donald Trump Facebook Mest lesið Silja Björk biður Ingó afsökunar Innlent Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann Innlent Albert mættur í dómsal Innlent Skilur ekkert í niðurstöðu Guðrúnar Innlent Svarar fyrir að hafa banað syni sínum í Kópavogi Innlent Talinn hafa svipt barn frelsi sem hann grunaði um að stela veipi Innlent Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Erlent „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Innlent „Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu Erlent Sigurður Helgi Guðjónsson látinn Innlent Fleiri fréttir Trump vígreifur en veit betur Bon Jovi lofaður fyrir að bjarga konu í sjálfsvígshugleiðingum Fyrsta geimganga óbreyttra borgara Fujimori er látinn „Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu 171 handtekinn og 402 börnum bjargað í aðgerðum í Malasíu Sex starfsmenn UNRWA sagðir hafa verið drepnir í árás Ísraelshers Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Sprengdu yfirgefinn skýjakljúf í Lousiana Daunill þróun í metanlosun mannkynsins Baráttan um Bandaríkin: Sögulegar kappræður gerðar upp Gætu leyft Úkraínu að nota langdræg flugskeyti gegn Rússlandi Krefjast þess að Ísraelsher bæti ráð sitt eftir dráp á Bandaríkjamanni Brú yfir Saxelfi hrundi í Dresden Trump í mikilli vörn en lýsir yfir sigri 1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt Bein útsending: Harris og Trump takast á í fyrsta sinn Sveik 1,3 milljarða úr streymisveitum með gervispilunum Trump verði áfram Trump en meira í húfi fyrir Harris Verður næsti utanríkisráðherra Svíþjóðar Hafa fengið skotflaugar frá Íran Reglur kvöldsins: Engir áhorfendur og slökkt á meðan hinn talar Siðblindur raðlygari sem sýndi aðra hlið út á við Ætla í fyrstu borgaralegu geimgönguna Handtekinn í Dubaí Rannsókn hafin en efasemdir uppi um sekt Letby Auglýsa eftir upplýsingum um 28 ára gamalt morðmál Brú hrundi eftir gríðarlegan fellibyl Weinstein fluttur í flýti í bráðaaðgerð Þjóðverjar herða tökin á landamærum Sjá meira