River hafði betur gegn Boca í ótrúlegum úrslitaleik Anton Ingi Leifsson skrifar 9. desember 2018 22:15 Mikill fögnuður í kvöld. vísir/getty
River Plate hafði betur, 3-1, gegn Boca Juniors í síðari leik liðanna í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni í Suður-Ameríku og samanlagðum 5-3 sigur River Plate í leikjunum tveimur. Eins og frægt er orðið var síðari leiknum frestað í síðasta mánuði eftir að allt sauð upp úr fyrir leikinn. Leikmenn Boca Juniors voru grýttir og rúta þeirra skemmd. Því var leikurinn færður yfir til Spánar og var spilaður á Santiago Bernabeu. Á 44. mínútu kom fyrsta markið en Dario Benedetto kom þá River Plate yfir eftir að hafa sloppið einn í gegn eftir að hafa leikið á tvo varnarmenn River Plate. Þannig stóðu leikar í hálfleik. “Heimamenn” í River Plate jöfnuðu svo metin á 68. mínútu er Lucas Pratto fékk sendingu inn á teiginn þar sem hann var einn og kláraði færið einstaklega vel. 1-1 og þannig var staðan er venjulegum leiktíma var lokið. Því var gripið til framlengingar þar sem útivallarmarkareglan er ekki við gildi í keppninni. Boca varð fyrir áfalli í upphafi framlengingarinnar er Wilmar Barrios fékk sitt annað gula spjald og var þar af leiðandi sendur í sturtu. Ekkert mark var þó skorað í fyrri hálfleik framlengarinnar. River komst þó í 2-1 á 109. mínútu með marki frá Juan Quintero og eftir það reyndu Boca-menn allt hvað þeir gátu til að jafna metin. Það tókst þó ekki þrátt fyrir skot í stöng og fleiri góð tækifæri og Gonzalo Martinez tryggði River 3-1 sigur í uppbótartíma. Ótrúlegur endir því á Copa Libertadores þetta tímabilið og ekki sá fallegasti en það verður væntanlega fagnað vel í River Plate hluta borgarinnar í kvöld.
Fótbolti Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Sjálfsmark endaði sigurgönguna og dramatík í Aserbaísjan Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Íslensku landsliðskonurnar spila á heimavelli Nottingham Forest Frakkar munu að svo stöddu ekki sniðganga HM vegna Grænlands Telur starf Guardiola í hættu: „Hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta“ Óttast að Grealish verði lengi frá Feginn Frank fékk sér tvö stór rauðvínsglös Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Tvenna Jesus, óvænt töp, veisla í Madríd og langþráður sigur Lærir inn á nýtt umhverfi: „Ég mun gera mörg mistök“ Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn KSÍ staðfestir leik gegn heimilislausa HM-liðinu Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Sjá meira