Skrifar kynferðislega tilburði sína á vinnustaðamenningu Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. desember 2018 12:43 Stofnandi Ted Baker, Ray Kelvin, er þekktur fyrir að láta lítið fyrir sér fara. Myndir sem þessar, þar sem ekki sést fullkomlega í andlit hans, eru því algengar í alþjóðlegum myndabönkum. Getty/Astrid Stawiar
Stjórn tískuvöruframleiðandans Ted Baker hefur ákveðið að skipa rannsóknarnefnd til að kanna ásakanir starfsmanna á hendur stofnanda fyrirtækisins, Ray Kelvin. Fregnirnar hafa leitt til hríðlækkunar á hlutabréfaverði í fyrirtækinu. Um 300 einstaklingar, sem ýmist eru núverandi eða fyrrverandi starfsmenn Ted Baker, rituðu nafn sitt við kvörtun þar sem fyrrnefndum stofnanda var gefið að sök að hafa hagað sér með ósæmilegum hætti í þeirra garð. Er Ray Kelvin meðal annars sagður hafa kysst eyru þeirra, nuddað axlir, farið fram á að þeir settust í kjöltu hans og faðmað þá án samþykkis. Auk þess er stofnandinn sagður hafa látið margvísleg kynferðisleg og óþægilega tvíræð ummæli falla um starfsmenn sína. Í yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi frá sér vegna málsins, og reifuð er á vef The Guardian, segir að stjórn þess, sem og Kelvin sjálfur, hafi ætíð stært sig af því að Ted Baker sé góður vinnustaður. Af þeim sökum líti fyrirtækið þessar ásakanir alvarlegum augum og að boðað hafi verið til óháðrar rannsóknar. Niðurstöður hennar verði svo notaðar til að ákvarða næstu skref. Haft er eftir einum fyrrverandi starfsmenn Ted Baker, sem sagði upp fyrr á þessu ári, að stofnandinn hafi reglulega faðmað sig án þess að fá til þess samþykki. Þar að auki á hann að hafa nuddað axlir starfsmannsins í fjölmargra vitna viðurvist í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Honum hafi þótt það lítillækkandi.Hér ber að líta hluta af haust og vetrarlínu Ted Baker í fyrra.Getty/Neilson Barnard„Þetta var ekki eins og faðmlög á milli vina sem vara kannski í eina til tvær sekúndur. Þau stóðu alltaf augljóslega of lengi yfir,“ er haft eftir starfsmanninum í Guardian. Hann bætir við að auk þess hafi ekki verið hægt að rífa sig lausan úr faðmlögunum. Stofnandinn sé ekki aðeins stæðilegur heldur leiddi valdaójafnvægið til þess að starfsmenn þorðu síður að láta óþægindi sín í ljós. Kelvin, sem stofnaði Ted Baker árið 1988, hefur ekki viljað tjá sig um þessa ásakanir en haft var eftir honum í viðtali sem tekið var síðastliðið sumar að hann hafi aldrei neytt starfsmenn til að setjast í kjöltu hans. Hann segir marga hafa tyllt sér í kjöltu föður hans á sínum tíma enda hafi það hreinlega þótti vinalegt á uppvaxtarárum sínum. Faðmlög og önnur heilbrigð nánd hafi lengi verið lykilþáttur í vinnustaðamenningu Ted Baker. Kelvin segir að sama skapi ekki hægt að gera þá kröfu að hann umbylti tilveru sinni á einni nóttu þó svo að fólk sé farið að líta ákveðna hegðun, sem hafi kannski lengi þótt í lagi, öðrum augum en áður. Fregnirnar af rannsóknarnefndinni eru sagðar bera meginábyrgðina á hruni hlutabréfaverðs í Ted Baker. Við opnun kauphallarinnar í Lundúnum í gær féllu bréfin um næstum 13 prósent. Ted Baker rekur alls um 490 verslanir um allan heim og hefur heildarvelta fyrirtækisins verið næstum 100 milljarðar íslenskra króna á þessu ári.
Bretland Tíska og hönnun Mest lesið Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Viðskipti erlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira