Kólumbískur eiturlyfjabarón skotinn til bana Vésteinn Örn Pétursson skrifar 22. desember 2018 22:14 Teymi kólumbískra sérsveitarmanna varð Arizala að bana. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Camilo Mejia/Getty
Kólumbíski glæpaleiðtoginn og eiturlyfjabaróninn Walter Arizala, betur þekktur sem „Guacho“ var í dag skotinn til bana af teymi kólumbískra sérsveitarmanna eftir að hafa verið á flótta síðustu mánuði. Þetta tilkynnti Ivan Duque, forseti Kólumbíu, í sjónvarpsávarpi fyrr í dag.Í fréttaflutningi Sky af málinu er Arizala kallaður „vinstrisinnaður uppreisnarmaður.“ Auk þess er hann sagður hafa verið leiðtogi tuga skæruliða sem áður voru hluti af FARC, vopnuðum uppreisnarhópi í Kólumbíu. Í ávarpi sínu sagði Duque forseti að Arizala hafi verið drepinn í „hetjulegri aðgerð.“ Þá sagði hann að Kólumbíubúar gætu nú „sofið rótt því einn allra versti glæpamaður sem landið hefur alið af sér er fallinn frá.“ Arizala, sem var 29 ára þegar hann lést, er talinn hafa fyrirskipað morðið á þremur mönnum fyrr á þessu ári, blaðamanninum Javier Ortega, ljósmyndaranum Paul Rivas og bílstjóranum Efrain Segarra. Þeir störfuðu allir fyrir dagblaðið El Comercio, sem er frá Ekvador. Þeir voru að vinna að umfjöllun um ofbeldi á landamærum Kólumbíu og Ekvador þegar þeir voru myrtir.
Kólumbía Suður-Ameríka Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira