Rólegheitaveður í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. desember 2018 08:30 Það er spáð ágætu veðri í dag og á morgun og bjartviðri á höfuðborgarsvæðinu. vísir/vilhelm
Það verður rólegheitaveður í dag og á morgun samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Á sunnudag, Þorláksmessu, gengur hann síðan í vaxandi suðvestanátt með slyddu eða rigningu á vestanverðu landinu en fyrir austan helst hann þurr og það hlýnar smám saman. Á mánudag, aðfangadag, er svo spáð hvassri suðvestanátt með rigningu á norðvestanverðu landinu en annars hægari vindi og lítilsháttar vætu á Suðvesturlandi en þurru fyrir austan. Þá verður fremur hlýtt í veðri. „Ef einhver snjór hefur fallið daginn áður þá mun hann líklega taka upp, þ.a. jóladagsmorgunn ætti a vera snjólaus að mestu, nema líklega á mið-Norðurlandi. Áfram spáð mildum suðlægum áttum með vætu á sunnanverðu landinu, en þurru fyrir norðan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Norðaustlæg átt, 3-10 m/s. Þokuloft eða súld á A-verðu landinu og slydda eða rigning eftir hádegi, úrkomulítið NV-til, en annars yfirleitt léttskýjað. Hægviðri og víða léttskýjað á morgun, en sums staðar skýjað við sjávarsíðuna, suðvestan 5-10 N-til annað kvöld. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum, en frost 1 til 8 stig inn til landsins, mest á N-landi.Á sunnudag (Þorláksmessa):Vaxandi suðvestan átt og stöku él, en bjart fyrir austan. Hvassviðri með slyddu eða rigningu um landið norðvestanvert um kvöldið, en annars hægari og þurrt að kalla. Hlýnar í veðri.Á mánudag (aðfangadagur jóla):Suðvestanhvassviðri á N-verðu landinu, en hægara syðra. Dálítil rigning NV-til, úrkomulítið SV-lands, en annars þurrt. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 2 til 7 stig.Á þriðjudag (jóladagur):Gengur í sunnan og suðaustan 10-15 með rigningu eða slyddu, fyrst suðvestantil. Hiti 0 til 5 stig.Á miðvikudag (annar í jólum):Suðvestlæg átt og skúrir eða él og hiti 0 til 5 stig, en þurrt um landið norðaustanvert og hiti um frostmark.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Sjá meira