Liverpool maður mögulega til bjargar í framherjahallæri Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2019 13:45 Divock Origi. Getty/Malcolm Couzens
Tottenham verður án tveggja bestu framherja sinna á næstunni og möguleg lausn er að fá leikmann að láni frá Liverpool. Harry Kane er meiddur á ökkla og spilar ekki aftur fyrr en í mars. Son Heung-min er upptekinn í Asíukeppninni og verður það mögulega fram í febrúar. Son verður frá til 2. febrúar komist Suður-Kórea alla leið í úrslitaleikinn. Það þýddi að hann myndi missa af deildarleikjum við Fulham, Watford og Newcastle, bikarleik á móti Crystal Palace og svo seinni undanúrslitaleiknum á móti Chelsea í enska deildabikarnum. Tottenham þarf því að treysta á Fernando Llorente eða reyna að ná í nýjan mann. Llorente var á förum til Athletic Bilbao en nú verður ekkert af því. Spænski framherjinn minnti á sig á dögunum með þrennu á móti Tranmere í enska bikarnum. Telegraph skrifar um möguleika á því að Liverpool framherjinn Divock Origi fari til Tottenham liðsins. Origi á eftir átján mánuði af samningi sínum við Liverpool en þessi 23 ára strákur fær ekki mörg tækifæri hjá Jürgen Klopp.Tottenham are reportedly eyeing up Liverpool for a Harry Kane replacement. It's the gossip! https://t.co/Ke4WurUEwUpic.twitter.com/ZkjFinxjl6 — BBC Sport (@BBCSport) January 17, 2019Divock Origi hefur ekki spilað marga leiki með Liverpool í vetur en sigurmarkið hans á móti Everton er engu að síður eitt af mikilvægari mörkum liðsins á leiktíðinni. Divock Origi er á góðum aldri hafi Mauricio Pochettino yfir höfuð trú á honum en það er vitað að Pochettino er líka mikill aðdáandi Jay Rodriguez sem er að spila vel hjá West Bromwich Albion. Jarrod Bowen hjá Hull City er annað nafn sem hefur verið uppi á borði. Tottenham getur einnig horft meira til enska landsliðsmannsins Dele Alli þegar kemur að því að skora mörk í fjarveru Kane en eins getur Lucas Moura farið framar á völlinn til að fylla í skarðið. Það er því ekkert víst að Mauricio Pochettino nái í nýjan framherja í þessu framherjahallæri Tottenham liðsins.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 23-24 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Mikil trú á íslenskum sigri meðal stuðningsmanna Íslands Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti City fékk skell í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Sjá meira