Sér liðsfélaga Jóhanns Berg sem lausnina á miðvarðarvandræðum Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2019 11:30 James Tarkowski í leik með Burnley. Getty/Rich Linley
Liverpool vill frá Burnley manninn James Tarkowski á láni út tímabilið en Burnley vill aðeins selja leikmaninn fyrir mikinn pening. Liverpool reynir að leysa miðvarðarvandræðin sín á meðan glugginn er opinn. Liverpool á toppnum í ensku úrvalsdeildinni og með bestu vörnina í deildinni. Liðið er samt í miklum vandræðum í vörninni vegna meiðsla miðvarða sinna. Króatinn Dejan Lovren fór meiddur af velli í bikarleiknum á móti Wolves sem þýðir að þrír miðverðir félagsins eru nú á meiðslalistanum. Fyrir voru þeir Joe Gomez og Joel Matip frá vegna meiðsla. Enskir fjölmiðlar hafa í morgun skrifað um áhuga Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, á hinum 26 ára gamla James Tarkowski. Klopp vill fá Tarkowski til að hjálpa liðinu að komast í gegnum miðvarðarmartröðina.PAPER TALK Atletico join Morata chase Liverpool eye Tarkowski Poch wants Kessie Head here for all of today's back page headlines: https://t.co/VZF7A33WJFpic.twitter.com/m9UQwnsYAA — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) January 10, 2019Þegar Dejan Lovren meiddist þá þurfti Jürgen Klopp að senda hinn sextán ára gamla Ki-Jana Hoever inn í miðvörðinn. Það var og er engin óskalausn enda strákurinn að stíga sín fyrstu spor. Klopp sagði frá því að það styttist í þá Joe Gomez og Joel Matip en þeir eru samt ekki klárir strax. Joe Gomez er nær endurkomu en þeir eru hvorugur byrjaður að æfa á fullum krafti.NEW: Liverpool reportedly target James Tarkowski on loan.https://t.co/uftvk0UkL3 — Anfield HQ (@AnfieldHQ) January 10, 2019Burnley setti strax 50 milljón punda verðmiða á James Tarkowski samkvæmt enskum fjölmiðlum og tók ekki vel í þá beiðni Liverpool um að fá enska landsliðsmanninn á láni. James Tarkowski kom til Burnley árið 2016 eða sama ár og félagið keypti Jóhann Berg Guðmundsson frá Charlton Athletic. Jóhann Berg kom í júlí en Tarkowski hafði komið frá Brentford í janúar.
Enski boltinn Mest lesið Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti „Núna er allt betra“ Handbolti EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Handbolti Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 24-23 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti „Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ Handbolti Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Sjá meira
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti