Forseti Kirgistans gæti neyðst til að klæðast höfuðfati Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2019 08:28 Kirgisi með Ak-kalpak. Getty
Kirgiska þingið er á góðri leið með að samþykkja lagafrumvarp sem mun neyða forseta landsins til að klæðast einkennishatti kirgisku þjóðarinnar þegar hann ferðast til útlanda. Filthatturinn, Ak-kalpak, er nú þegar með sinn eigin hátíðardag og stendur nú til að gera honum enn hærra undir höfði. Lagafrumvarpið, sem einnig kveður á um að hægt verði að sekta einstaklinga fyrir að vanvirða hattinn, hefur nú verið afgreitt úr þingnefnd og má gera ráð fyrir að það verði tekið til frekari meðferðar á þinginu innan skamms. Kirgiska þjóðin hefur einblínt mikið á þjóðarvitund og menningu í kjölfar óeirða í landinu árið 2010. Hluti þess snýr að Ak-kalpak, sem hefur verið með sinn eigin hátíðardag frá árinu 2016, eða 5. mars. Tilurð lagafrumvarpsins má rekja til atviks þegar maður nokkur setti Ak-kalpak á hundinn sinn á hundasýningu í landinu árið 2017. Hatturinn er jafnan hvítur og er sagður tákna tinda kirgisku fjallanna sem ætíð eru sagðir snævi þaktir.Sooronbay Jeenbekov er forseti Kirgistan.Getty
Kirgistan Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira