City á áfram möguleika á fernunni eftir sigur á Chelsea í deildarbikarnum Anton Ingi Leifsson skrifar 24. febrúar 2019 19:19 City fagnar í dag. vísir/getty
Manchester City á enn möguleika á fernunni eftir að liðið hafði betur gegn Chelsea í úrslitaleik deildarbikarsins á Wembley í dag. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Liðin mættust ekki fyrir löngu og þá rúllaði Manchester City yfir Chelsea. Lokatölurnar urðu 6-0 og það var ljóst frá upphafi að leikmenn Chelsea voru stemmdari í kvöld en fyrr í mánuðinum. Fyrri hálfleikurinn var afar bragðdaufur. Bæði lið voru lítið í því að opna sig og hálfleikurinn spilaðist eftir því en lítið sem ekkert var um færi. Markalaust í hálfleik. Í síðari hálfleik opnaðist leikurinn en Chelsea voru ívið sterkari og fengu hættulegri færi. N'Golo Kante var nærri því að koma Chelsea yfir en skaut yfir úr góðu færi. City virtist vera að komast yfir er Sergio Aguero kom boltanum í mark Chelsea í síðari hálfleik en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Í endursýningu sást að það munaði litlu, ef um rangstöðu var að ræða. Markalaust eftir venjulegan leiktíma. Í framlengingunni fengu liðin nokkrar álitlegar sóknir en ekki tókst að koma boltanum í netið. Staðan var því markalaus einnig eftir framlengingu en undir lok framlengarinnar gerðist athyglisvert atvik. Kepa, markvörður Chelsea, meiddist og Marizio Sarri, stjóri Chelsea, vildi taka hann útaf. Hann neitaði að koma útaf og Sarri var allt annað en sáttur. Willy Caballero, varamarkvörður Chelsea, var klár á hliðarlínunni en Kepa neitaði hins vegar að koma útaf. Sarri var allt annað en sáttur. Vítaspyrnukeppnin var spennandi. Nokkur voru mislukkuð en hetjan reyndist svo Raheem Sterling sem skoraði úr síðasta vítinu í slá og inn.Vítaspyrnukeppnin: 0-0 Ederson varði frá Jorginho 1-0 Ilkay Gundogan skoraði 1-1 Cesar Azpilicueta skoraði 2-1 Sergio Aguero skoraði 2-2 Emerson skoraði 2-2 Kepa varði frá Leroy Sane 2-2 David Luiz skaut í stöngina 3-2 Bernardo Silva skorar 3-3 Eden Hazard skorar 4-3 Raheem Sterling skorarMost League Cup wins: 8 - Liverpool 6 - @ManCity (+1) 5 - Manchester United 5 - Aston Villa 5 - Chelsea#EFL#CarabaoCupFinal — Gracenote Live (@GracenoteLive) February 24, 2019
Fótbolti Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Fleiri fréttir Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Sjá meira