Stöndum vörð um hreyfanleikann
Það er nefnilega mjög gott þegar allir sjá sannleikann með sömu augum því þá þarf ekki að sólunda tíma í að ræða markmiðin heldur bara leiðirnar. Ef markmiðið er að koma í veg fyrir að fólk fitni þurfti því ekki að rífast mikið um það undanfarna áratugi hvað þyrfti að gera—heldur bara hvernig ætti að fara að því. Og spurningin um hvernig mætti sporna við offitu snerist ekki um orsakirnar, sem voru álitnar augljósar.
Flestir þekkja núorðið söguna á bak við það hvernig linnulaus áróður gegn fitu í matvælum—hin raunverulega fitusmánun—leiddi til algjörrar samfélagslegrar samstöðu um það markmið að draga úr neyslu fitu.
Allir lögðust á eitt. Stjórnvöld héldu úti áróðri og matvælaframleiðendur brugðust við með því að þróa leiðir til þess að ná fjandans fitunni út úr matnum, þannig að eftir væru bara prótín og kolvetni—sem allir vissu að voru meinholl. Og þegar í ljós kom að flest matvæli urðu nánast óæt þegar búið var að fjarlægja fituna af feitu bitunum þá var dælt fleiri kolvetnum—meiri sykri—í matinn. Þannig var hægt að auglýsa að þetta og hitt væri fitulaust eða fituskert. „Fáðér rúsínubrauð, nær algjörlega fitusnauð.“ Og eftir því sem meiri sykur fór í matinn, þeim mun duglegri voru börnin að borða alla þessa fitusnauðu hollustu. Og viti menn—það tókst. Fituneysla snarminnkaði á Vesturlöndum og allir urðu aftur grannir og spengilegir eins og glímukappar á gulnuðum myndum frá upphafi 20. aldar.
Ketó
Eða nei. Það var víst ekki þannig. Hollráðin reyndust stórhættuleg og stórjuku offitu og stuðluðu að illvígum lífsstílssjúkdómum. Þetta þarf eflaust ekki að tyggja ofan í lesendur, sem eru örugglega flestir fyrir löngu búnir að átta sig á vitleysunni, komnir í viðvarandi ketósu og flokka „grófa brauðið, krækiberin og kartöfluna“ með metamfetamíni og neyta helst ekki „steinseljunnar“ nema til hátíðabrigða.
Á undanförnum hálfum áratug eða svo hefur nefnilega orðið hressilegur viðsnúningur í umræðunni um fituneyslu; og það þykir ekki lengur vera tilefni til geðrannsóknar þegar fólk segist lifa á litlu öðru en fituríkum matvælum. Nú eru allir sammála um að það er alls ekki fitan sem er hættuleg heldur einmitt kolvetnin sem áttu að bjarga okkur öllum frá því að verða offitu að bráð. Nú höfum við sem betur fer fundið rétta svarið, sem er einmitt alveg þveröfugt við vitlausa svarið sem allir trúðu skilyrðislaust á fyrir örfáum árum. Það góða við nýja svarið er þó auðvitað sú staðreynd að það er hið endanlega rétta svar, ólíkt því fyrra, sem allir gátu auðvitað séð að var mjög kolrangt, og einkum verður auðveldara að sjá það fyrir eftir því sem frá líður. Eða hvað?
Ekki vera með vesen
Sjálfsögð sannindi—sem enginn heilvita maður dregur í efa—eru auðvitað sérstaklega þægileg í stjórnmálum. Og ein sjálfsögðu sannindin sem stjórnmálamenn allra flokka eru tilbúnir til að kvitta upp á er að stöðugleiki sé ofsalega góður og eftirsóknarverður eiginleiki í samfélaginu.
Þeir sem eru með vesen eru ásakaðir um að „ógna“ stöðugleikanum og eins og allir vita þá er stöðugleikinn svo góður fyrir alla að það er algjör óþarfi að ræða um hvort hann sé eftirsóknarverður; einungis um bestu leiðirnar til þess að ná honum fram. Aðilar vinnumarkaðarins segjast almennt séð vera sammála um að stöðugleiki sé ákaflega mikilvægt markmið; og vissulega má heita augljóst að andstaðan við stöðugleika—fullkomin upplausn—er ekki líkleg til þess að hjálpa til við sköpun neins konar lífsgæða.
En stöðugleikinn getur líka farið út í öfgar. Hann getur stundum gefið fólki góðar aðstæður til þess að skapa efnahagsleg, félagsleg og menningarleg verðmæti en hann getur líka fryst í klakaböndum ósanngirni og óréttlæti. Ef stöðugleikinn verndar óverðskulduð forréttindi ákveðinna þjóðfélagshópa á kostnað annarra þá ætti krafa allra sem vilja réttlátara samfélag frekar að vera hreyfanleiki en stöðugleiki. Meðal annars af þessum ástæðum getur hár erfðafjárskattur verið réttlátur.
Ef völd og peningar safnast um of á hendur þeirra sem ekki hafa sjálfir skapað verðmætin þá er næsta víst að hatrömm varðstaða um sérhagsmuni verður áberandi í stjórnmálunum. Slíkt ástand getur af sér gremju og óþol, algjörlega óháð því hvað óhrekjanlegar hagtölur segja um það hvort fólk hafi það gott eða slæmt.
Gremja þrátt fyrir velsæld
Ísland er mjög ríkt samfélag og hér ríkir miklu meiri tekjujöfnuður en víðast hvar í sambærilegum löndum. Því er heldur ekki mótmælt að lægstu laun hér eru mun betri en lægstu laun nánast alls staðar annars staðar. Samt sem áður virðist stefna í að allt hlaupi í bál og brand í illdeilum vegna kjarasamninga. Þetta er hörmuleg niðurstaða, ef af verður.
Skaðinn af slíkum aðgerðum getur orðið yfirþyrmandi og mun líklega bitna einna verst á þeim fyrirtækjum sem eru að vaxa, stunda alþjóðleg viðskipti og standa í harðri samkeppni. Lausn á kjaradeilunum mun svo taka fyrst og fremst mið af rótgrónu, stóru fyrirtækjunum—stöðugu fyrirtækjunum, mjög líklega á kostnað þeirra smærri og vaxandi.
Illdeilurnar, vantraustið og átakaþorstinn mun því hjálpa til við að festa í sessi hagsmuni þeirra stóru og sterku mjög líklega á kostnað þeirrar starfsemi sem þarf einmitt að ná að vaxa til þess að viðhalda samkeppnishæfni og velsæld á Íslandi. Ef nýr stöðugleiki er fenginn á kostnað hreyfanleika er öruggt að allir sigrar í baráttunni fyrir réttlæti verða skammvinnir.
Skoðun
Sorg barna - fyrstu viðbrögð barna við missi
Matthildur Bjarnadóttir skrifar
Með styrka hönd á stýri í eigin lífi
Árni Sigurðsson skrifar
Hjólað inní framtíðinna
Búi Bjarmar Aðalsteinsson skrifar
Framsækin ríkisstjórn í umhverfis- og auðlindamálum: Nýi stjórnarsáttmálinn.
Stefán Jón Hafstein skrifar
Hugvíkkandi meðferðir eru fortíð okkar, nútíð og framtíð
Sara María Júlíudóttir skrifar
Komdu út að „Vetrar-leika“ í Austurheiðum Reykjavíkur
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Upprætum óttann við óttann
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar
Hér er kona, um konu…
Vilborg Gunnarsdóttir skrifar
Vegna greinar Snorra Mássonar
Guðmundur Andri Thorsson skrifar
Ertu á krossgötum?
Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins?
Sigurjón Þórðarson skrifar
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg?
Gunnar Ármannsson skrifar
Máttur kaffibollans
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar
Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin
Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Árið 1975 er að banka
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar?
Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Val Vigdísar
Skúli Ólafsson skrifar
Friður á jörðu
Þröstur Friðfinnsson skrifar
Af hverju eru kennarar að fara í verkfall?
Anton Már Gylfason skrifar
Opið bréf til Íslandspósts ohf.
Gróa Jóhannsdóttir skrifar
Gaza getur ekki beðið lengur
Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar
Ísland yrði betra með aðild að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar
SVEIT – Kastið inn handklæðinu
Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar
Skjáfíkn - vísindi eða trú?
Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Evrópusambandið eða nasismi
Snorri Másson skrifar
Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað
Andri Þorvarðarson skrifar
Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi
Sæunn Kjartansdóttir skrifar
Listin að styðja en ekki stýra
Árni Sigurðsson skrifar