Bakverðir Liverpool liðsins í stoðsendingakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2019 16:30 Andrew Robertson og Trent Alexander-Arnold fagna saman en með þeim á myndinni er markvörðurinn Alisson Becker. Getty/Robbie Jay Barratt
Andrew Robertson og Trent Alexander-Arnold, bakverðir Liverpool, eru tveir af sókndjörfustu bakvörðum ensku úrvalsdeildarinnar og þeir hafa báðir lagt upp ófá mörkin á þessu tímabili. Sóknarleikur Liverpool fer mikið í gegnum þá tvo þar sem þeir vinna stanslaust fram og til baka á sínum væng, Robertson vinstra megin og Alexander-Arnold hægra megin. Fésbókarsíða Liverpool FC ákvað að skella saman myndbandi með mörkum sem þeir Andrew Robertson og Trent Alexander-Arnold hafa lagt upp á þessu tímabili. Myndbandið er sett upp eins og stoðsendingakeppni á milli þeirra en saman hafa þeir gefið sextán stoðsendingar á tímabilinu þar af fjórtán þeirra í ensku úrvalsdeildinni. Þetta eru líka báðir framtíðarmenn hjá Liverpool því Andrew Robertson er 24 ára gamall og Trent Alexander-Arnold er aðeins tvítugur. Robertson er þegar orðinn fyrirliði skoska landsliðsins og Alexander-Arnold er komast í stærra hlutverk hjá enska landsliðinu. Andrew Robertson er með fjögurra stoðsendinga forystu eins og staðan er núna en Trent Alexander-Arnold er kominn til baka eftir meiðsli og náði stoðsendingaþrennu á dögunum.Flestar stoðsendingar hjá Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í vetur: 1. Andrew Robertson 8 2. Mohamed Salah 7 3. Trent Alexander-Arnold 6 4. Roberto Firmino 4 4. James Milner 4Flestar stoðsendingar hjá varnarmönnum í ensku úrvalsdeildinni í vetur: 1. Andrew Robertson, Liverpool 8 2. Trent Alexander-Arnold, Liverpool 6 2. José Holebas, Watford 6 4. Héctor Bellerín, Arsenal 5 4. Sead Kolasinac, Arsenal 5 4. Benjamin Mendy, Manchester City 5 7. César Azpilicueta, Chelsea 4 7. Ricardo Pereira, Leicester 4 7. Matt Doherty, Wolves 4
Enski boltinn Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Fleiri fréttir „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Sjá meira