Landsliðskempa stýrir viðskiptaþróun Íslandssjóða Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. mars 2019 13:09 María Björg Ágústsdóttir.
María Björg Ágústsdóttir hefur hafið störf hjá Íslandssjóðum þar sem hún stýrir viðskiptaþróun félagsins. Greint er frá ráðningu hennar í tilkynningu frá Íslandsbanka þar sem jafnframt segir að María sinni einnig starfi fjármálastjóra 105 Miðborgar slhf. Þá gegnir hún jafnframt hlutverki framkvæmdastjóra fasteignafélagsins FAST-1. Í tilkynningu er reynsla María reifuð, en hún er sögð hafa starfað í rúman áratug í fjármálageiranum. Til að mynda hafi hún starfað í fjárstýringu Glitnis banka og síðar hjá þrotabúi Glitnis sem forstöðumaður upplýsingamála og reksturs. Þá sat María í stjórn ISB Holding árin 2009-2016. Hún lauk lauk meistaranámi við University of Oxford árið 2007 í stjórnunarfræðum og BA-gráðu í hagfræði frá Harvard University árið 2006. María hefur lokið námi í verðbréfamiðlun og einnig CAIA®-prófi, sem lýst er sem alþjóðlegri prófgráðu í sérhæfðum fjárfestingum. Þá er þess einnig getið að María á að baki glæstan feril sem landsliðsmarkvörður í knattspyrnu. Hér á landi spilaði hún með Stjörnunni, KR og Val áður en hún hélt út í atvinnumennsku hjá Örebro í Svíþjóð. Íslandssjóðir eru dótturfélag Íslandsbanka og stýra eignum sem nema um 266 milljörðum króna. Rúmlega 10.000 sparifjáreigendur og fjárfestar eru auk þess sagðir ávaxta eignir sínar í sjóðum félagsins. Fyrrnefnd Miðborg slhf. reisir nú íbúðir og skrifstofuhúsnæði á Kirkjusandsreit og FAST-1 lauk nýverið sölu á ríflega 22 milljarða króna fasteignasafni sínu.
Íslenskir bankar Vistaskipti Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira