Rodgers um Liverpool tímann: Markmiðið var Meistaradeildarsæti en við unnum næstum því deildina Anton Ingi Leifsson skrifar 2. mars 2019 10:00 Brendan Rodgers er kominn aftur til Englands. vísir/getty
Brendan Rodgers, nýráðinn stjóri Leicester, var í ítarlegu viðtali við Sky Sports fyrir fyrsta leik sinn sem stjóri Leicester en Leicester mætir Watford um helgina. Í viðtalinu ræddi Rodgers meðal annars um tíma sinn hjá Liverpool en hann stýrði Liverpool frá 2012-2015. Jurgen Klopp, núverandi stjóri Liverpool, tók svo við liðinu eftir að Rodgers hvarf á braut. „Þegar ég kom til Liverpool var fyrsta verkefni mitt að lækka launin. Þú getur bara kíkt á leikmennina sem yfirgáfu félagið. Maxi Rodriguez, Alberto Aquialani og Pepe Reina,“ sagði Rodgers í samtali við Sky Sports. „Verkið var að lækka launin og koma inn með yngra lið. Í janúar gátum við svo gert fyrstu kaupin og fyrir 20 milljónir punda gátum við keypt Daniel Sturridge og Philippe Coutinho.“ „Á öðru tímabilinu unnum við næstum því titilinn og komumst í Meistaradeildina. Markmiðið var að komast í topp fjóra en þriðja árið var svo erfitt því við misstum Luis Suarez og allt sprakk því við komumst í Meistaradeildina.“ Suarez kvaddi Liverpool og fór til Barcelona en Rodgers segir að það hafi tekið á að missa Suarez því liðið hafi ekki náð að finna eftirmann Suarez. „Þetta var leiðinlegt fyrir mig því það hefði verið frábært að fara inn í þriðja árið með liðið sem við höfðum á ári tvö. Okkur leið þannig að við vorum með virkilega sterkt lið.“ „Luis yfirgaf félagið og við náðum ekki að fylla skarðið nægilega vel svo þriðja árið varð erfitt fyrir okkur því auðvitað var Steven Gerrard líka að hætta. Tvær goðsagnir hjá Liverpoool að kveðja.“ „Ég fékk einungis átta leiki á tímabili fjögur og síðan ákvað félagið að breyta til. Klopp kom inn og hefur gert frábært starf. Ég fór til Celtic og það var mögnuð reynsla,“ sagði Rodgers.
Fótbolti Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Fleiri fréttir „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Sjá meira