Innkalla hættulega barnaburðarpoka Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. mars 2019 14:22 Hætta er á því að barnið detti úr pokanum við notkun og þá getur einnig myndast köfnunarhætta. Mynd/Neytendastofa
Verslunin Húsgagnaheimilið hefur innkallað hættulega barnaburðarpoka frá Child Wheels by Childhome. Á pakkningunni stendur 3-way baby carriers og er heitið á vörunni Childhome Superstar. Á vef Neytendastofu kemur fram að framleiðandi burðarpokanna hafi tilkynnt um innköllun eftir að í ljós kom að pokinn væri hættulegur. Slit geti myndast við bönd og festingar, sem geti orðið til þess að barnið detti úr pokanum. Þá er einnig plastmiði á pokanum sem losnar auðveldlega en köfnunarhætta getur myndast ef barnið stingur miðanum upp í sig. Burðarpokinn hefur verið til sölu í Húsgagnaheimilinu við Fossaleyni og í vefverslun verslunarinnar. Hægt er að skila Childhome Superstar-burðarpokanum í Húsgagnaheimilið og fá endurgreiðslu. Neytendastofa hvetur foreldra til að hætta notkun burðarpokanna strax og hafa samband við Húsgagnaheimilið. Þetta er í annað sinn á rétt rúmum mánuði sem Neytendastofa vekur athygli á innköllun á hættulegum barnaburðarpokum. Í byrjun febrúar síðastliðnum innkallaði netverslunin Heimkaup.is tvær gerðir af barnaburðarpokum.
Innköllun Neytendur Mest lesið Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Viðskipti erlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best Atvinnulíf „Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Atvinnulíf „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Sjá meira