Eistneskir hægri popúlistar hóta því að efna til götuóeirða Atli Ísleifsson skrifar 26. mars 2019 08:49 Þingkosningar fóru fram í Eistlandi þann 3. mars síðastliðinn. EPA
Hægri popúlistar í Eistlandi hafa hótað því að efna til götuóeirða verði komið í veg fyrir stjórnarmyndunarviðræður þeirra og Miðflokksins, sem hefur verið við völd síðustu fjögur árin. Hinn frjálslyndi Umbótaflokkur hlaut flest atkvæði í þingkosningunum sem fram fóru 3. mars síðastliðinn. Fljótlega var tilkynnt að flokkurinn vildi kanna möguleikann á stjórn með Miðflokknum, þar sem Kaja Kallas, leiðtogi Umbótaflokksins, yrði forsætisráðherra landsins, fyrst kvenna. Miðflokkurinn hafnaði hins vegar slíkri stjórn og hóf þess í stað stjórnarmyndunarviðræður með íhaldsflokkinn Föðurlandið og popúlistaflokkinn og þjóðernisflokkinn Ekre. Mart Helme, formaður Ekre, hefur nú hótað því að stuðningsmenn flokksins muni standa fyrir óeirðum á götum landsins, standi „hið djúpa ríki, fjölmiðlar og Umbótaflokkurinn“ í vegi fyrir viðræðunum. „Það eru um 300 þúsund manns sem eru fátækir og búa við fátæktarmörk í Eistlandi sem hata Umbótaflokkinn,“ segir Helme. „Verði barátta okkar gerð að engu og við köstum eldspýtunni í púðurtunnuna verður sprenging, “ segir hann. Alls eiga 101 þingmaður sæti á eistneska þinginu, en Umbótaflokkurinn fékk 34 þingsæti, Miðflokkurinn 26, Ekre nítján, Föðurlandið tólf og Jafnaðarmenn tíu.
Eistland Tengdar fréttir Verður fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Eistlands Umbótaflokkurinn vann sigur í eistnesku þingkosningunum sem fram fóru í gær. 4. mars 2019 08:43 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira
Verður fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Eistlands Umbótaflokkurinn vann sigur í eistnesku þingkosningunum sem fram fóru í gær. 4. mars 2019 08:43