Svikahrappar reyna að kúga fé út úr eiginmanni Anne-Elisabethar Kristín Ólafsdóttir skrifar 8. apríl 2019 08:38 Ekkert hefur spurst til Anne-Elisabethar Hagen síðan í október í fyrra. Norska lögreglan
Svindlarar hafa gert tilraunir til að kúga fé út úr Tom Hagen, eiginmanni Anne-Elisbaethar Hagen sem rænt var af heimili hjónanna í október í fyrra, og fjölskyldu þeirra. Lögregla hefur nokkrar slíkar tilraunir til rannsóknar. Ekkert hefur spurst til Anne-Elisabethar síðan 31. október síðastliðinn en þrisvar hefur heyrst frá meintum mannræningjum. Þeir hafa krafist lausnargjalds að andvirði rúmlega milljarðs íslenskra króna í órekjanlegri rafmynt.Dagbladet hefur eftir rannsóknarlögreglumanninum Tommy Brøske, sem stýrt hefur rannsókninni á hvarfi Önnu-Elisabethar, að óprúttnir aðilar hafi haft samband við Hagen-fjölskylduna og reynt að kúga út úr henni fé. Þessar fjárkúgunartilraunir séu til rannsóknar, m.a. með tilliti til þess hvort einhverjir verði ákærðir, og þá eigi nokkrar þeirra rætur að rekja til útlanda. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur lögregla þegar sett sig í samband við svikahrappa sem reynt hafa að svindla á fjölskyldunni. Brøske vildi þó ekkert gefa upp um aðgerðir lögreglu vegna málsins eða frá hvaða löndum fjárkúgunartilraunirnar berast. Lögregla útilokar ekki að hvarf Anne-Elisabethar sé rannsakað sem morðmál. Komið hefur fram að lögreglumenn sem rannsaka hvarfið hafi fundið vísbendingar sem gefi til kynna að mannránið hafi verið þaulskipulagt. Þá benda ummerki á vettvangi til þess að Anne-Elisabeth hafi verið dregin út af baðherbergi á heimili hennar og eiginmannsins.
Anne-Elisabeth Hagen Noregur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira