Verður Herrera áfram hjá United eftir allt saman? Anton Ingi Leifsson skrifar 12. apríl 2019 14:30 Herrera í leik með United. vísir/getty
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að Ander Herrera og Manchester United séu enn í viðræðum um nýjan samning og ekki sé útilokað að hann verði áfram hjá félaginu. Spánverjinn rennur út af samningi hjá United í sumar og hann hefur verið mikið orðaður burt frá félaginu. Sky Sports greindi frá því fyrr í mánuðinum að Herrera hefði nú þegar samið við PSG. Hann sagði í viðtali að hann og United væru ekki að tala sama tungumál hvað varðar nýjan samning en hann hefur mátt ræða við önnur félag frá fyrsta janúar síðastliðnum. „Þú verður að spurja hann,“ sagði Solskjær aðspurður um hvort Herrera verði áfram. „Ég veit ekki hvernig síðustu viðræður hafa verið. Hann verður að ná sér af meiðslunum því hann elskar að spila. Hann er ekki ánægður þegar hann getur ekki hjálpað samherjum sínum.“ „Hann hefur verið að leggja mikið á sig að koma til baka frá meiðslum sem hann varð fyrir gegn Liverpool. Því miður komu meiðslin á tímanum þegar samningaviðræðurnar stóðu yfir en þær eru enn í gangi.“ Herrera hefur ekki spilað með United síðan 30. mars er honum var skipt af velli í síðari hálfleik vegna meiðsla. United vann þann leik 2-1 gegn Watford en liðið er í mikilli baráttu um Meistaradeildarsæti. „Ég get ekki sagt hversu langt viðræðurnar eru komnar eða hvað hann ákveði. Hann hefur alltaf gefið allt sitt og það skiptir ekki máli hvort hann eigi fimm vikur eða fimm ár eftir af samningi sínum,“ sagði Norðmaðurinn.
Fótbolti Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Sjá meira