Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Valur Páll Eiríksson skrifar 11. september 2026 20:36 Lena Margrét skoraði níu mörk í kvöld. Vísir/Vilhelm Tveir leikir fóru fram í annarri umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. Fram er á toppnum eftir öruggan sigur.
Fram sótti Stjörnuna heim í Mýrina í Garðabæ í kvöld og leikur liðanna varð aldrei spennandi. Fram var komið með sex marka forystu, 10-4, um miðjan fyrri hálfleik og staðan í hálfleik 17-10 fyrir gestina úr Úlfarsárdal. Sá sjö marka munur hélst allt til loka og 35-28 sigur Fram niðurstaðan. Lena Margrét Valdimarsdóttir og Katrín Anna Ásmundsdóttir skoruðu báðar sjö mörk fyrir Fram í kvöld og Harpa María Friðgeirsdóttir sex. Inga María Reynisdóttir í liði Stjörnunnar var markahæst á vellinum með níu mörk. Fram er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina á toppi deildarinnar en Stjarnan er stigalaus. Dramatík á Selfossi Grótta var í leit að fyrstu stigum sínum er liðið heimsótti Selfoss. Þar voru heimakonur með yfirhöndina í byrjun jafns fyrri hálfleiks en Grótta sterkari á síðari hluta hálfleiksins. Staðan 15-12 fyrir Gróttu í hléi. Katrín Scheving Thorsteinsson skoraði dramatískt sigurmark fyrir Gróttu.Mynd/Grótta Grótta náði sex marka forskoti snemma í síðari hálfleiknum en Selfosskonur gáfust ekki upp. Við tók langur rúmlega tuttugu mínútna eltingaleikur og þegar 90 sekúndur voru eftir tókst Selfyssingum að jafna 23-23. Liðin skiptust á mörkum á hröðum lokakafla og staðan 25-25 þegar Grótta geystist upp í lokasókn þar sem Katrín Scheving Thorsteinsson skoraði flautumark á lokasekúndu leiksins. Dramatískur 26-25 sigur Gróttu reyndin og liði komið á blað. Bæði lið eru með tvö stig eftir fyrstu tvo leikina. Gróttukonan Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir stóð upp úr á vellinum í dag og skoraði tíu mörk en áðurnefnd Katrín Scheving skoraði átta. Hjá Selfossi skoraði Hulda Dís Þrastardóttir sex en Harpa Valey Gylfadóttir og Perla Ruth Albertsdóttir fimm hvor. Upplýsingar fengnar af HBStatz.is.
Olís-deild kvenna Fram Stjarnan UMF Selfoss Grótta Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Sjá meira