Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Valur Páll Eiríksson skrifar 9. september 2026 12:00 Ejaria spilaði fimm leiki fyrir Liverpool undir stjórn Jurgen Klopp veturinn 2016-17. Nick Taylor/Liverpool FC/Liverpool FC via Getty Images Fótboltamaðurinn Ovie Ejaria, fyrrverandi leikmaður Liverpool, Reading og Real Oviedo, leitar nýs liðs í gegnum miðilsins LinkedIn.
Ejaria er 28 ára gamall miðjumaður sem var í akademíu Arsenal áður en hann var keyptur til Liverpool sem ungur maður. Hann spilaði tvo deildarleiki fyrir Rauða herinn og þrjá leiki í FA-bikarnum. Hann fór þaðan til Sunderland og svo til Rangers í Skotlandi áður en hann var í sex ár hjá Reading í ensku B-deildinni. Hnémeiðsli léku hann grátt þar og hann var án liðs í heilt ár eftir að Reading lét hann fara sumarið 2023. Hann fékk samning hjá spænska úrvalsdeildarliði Real Oviedo á síðustu leiktíð og spilaði átta leiki fyrir liðið er það féll úr efstu deild. Hann hefur verið án félags frá því að samningurinn við spænska liðið rann út í sumar. Hann leitar nú nýs félags í gegnum atvinnumiðilinn LinkedIn sem er með yfir einn milljarð notenda. Þar segir hann „Ég er án félags og er að leita að réttu tækifæri. Ef það er tækifæri eða lið að leita að miðjumanni (6, 8 eða 10) sem getur einnig spilað sem vinstri kantmaður, sendið endilega á mig skilaboð.“ Meðfylgjandi er þá þriggja mínútna myndskeið af Ejaria í leik við Atlético Madrid í spænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Það er ekki óalgengt að leikmenn nýti LinkedIn til að leita tækifæra, þá sérlega þeir sem spila í neðri deildum. Af LinkedIn á HM Dæmi um slíkan er Pico Lopes, sem er fæddur og uppalinn í Dublin, en hann fékk fyrst tækifæri til að spila fyrir landslið Grænhöfðaeyja í gegnum LinkedIn árið 2018. Hann fékk þá skilaboð frá landsliðsþjálfaranum er knattspyrnusamband landsins leitaði fleiri leikmanna sem væru með tvöfalt ríkisfang. Lopes svaraði þjálfaranum ekki fyrr en níu mánuðum síðar, þar sem hann hafði fengið skilaboðin á portúgölsku, sem honum hafði ekki dottið í hug að setja í gegnum þýðingarforrit. Úr varð að Lopes byrjaði alla fjóra leiki Grænhöfðaeyja á HM í Norður-Ameríku í sumar.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Sjá meira