Þráir að enda tímabilið með því að fá gullið um hálsinn Hjörvar Ólafsson skrifar 18. maí 2019 11:00 Rut í leik með íslenska landsliðinu. vísir/ernir
Handbolti Rut Arnfjörð Jónsdóttir og liðsfélagar hennar hjá danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg hefja í dag úrslitarimmu sína á móti Herning um Danmerkurtitilinn í handbolta kvenna. Esbjerg hafnaði í öðru sæti deildarkeppninnar á tímabilinu og liðið laut nýverið lægra haldi fyrir ungverska liðinu Gyori í úrslitum EHF-bikarsins. Þar af leiðandi hefur Rut fengið tvö silfur um hálsinn á leiktíðinni og hún er áfjáð í að breyta litnum á verðlaunapeningnum og gullhúða hann með hagstæðum úrslitum í úrslitaeinvíginu gegn Herning. Tímabilið hófst raunar ekki hjá henni sjálfri fyrr en fyrir rúmum tveimur mánuðum þar sem hún gat ekki leikið með liðinu framan af vetri vegna ökklameiðsla sinna. „Eftir að ég eignaðist barn í febrúar árið 2018 sneri ég aftur inn á handboltavöllinn nokkrum vikum síðar. Svo meiddist ég fljótlega eftir að ég byrjaði að spila aftur og hef verið að glíma við ökklameiðsli í þó nokkurn tíma. Þetta voru flókin meiðsli sem var erfitt að vinna bug á og ég spilaði ekkert fyrr en fyrir rúmum tveimur mánuðum. Þó svo að það sé auðvitað gaman að snúa aftur á þeim tímapunkti þar sem úrslitin ráðast í þeim keppnum sem við tökum þátt í þá hefði ég viljað komast fyrr inn á völlinn og gera gagn,“ segir Rut í samtali við Fréttablaðið. „Það er algerlega frábær tilfinning að meiðslin séu að baki og það er yndislegt að vera farin að leika handbolta af fullum krafti á nýjan leik. Það var hins vegar mjög svekkjandi að ná ekki að vinna úrslitaleik EHF-bikarsins þar sem mér fannst við vera betri liðið í leikjunum á móti Gyori ef eitthvað var. Við náðum hins vegar ekki að vinna einvígið samanlagt og það voru mikil vonbrigði. Það er hins vegar góð staða að mínu mati að vera kominn á þann stað að vera fúl yfir að tapa úrslitaleikjum á móti jafn sterku liði og Gyori er,“ segir hún enn fremur. „Nú höfum við bara lagt þetta svekkelsi til hliðar og einbeittum okkur að því að koma okkur í úrslit í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar og núna að tryggja okkur gullið. Við höfum spilað sex leiki við Herning á leiktíðinni og það hafa allt verið hörkuleikir og þetta verður jöfn viðureign þar sem bæði lið eiga jafnan möguleika á að tryggja sér sigurinn. Ég er ofsalega einbeitt og staðráðin í að tryggja mér gullið eftir vonbrigðin eftir seinni leikinn gegn Gyori og að hafa misst af EHF-bikarnum,“ segir landsliðskonan um næsta verkefni sitt með liðinu. Rut sem hefur ekki getað leikið með íslenska landsliðinu í töluverðan tíma var valin í æfingahóp landsliðsins sem mætir Spáni um næstu mánaðamót í umspili um laust sæti á HM í Japan 2020. Hún er mjög spennt fyrir endurkomu sinni í leikmannahóp landsliðsins og hlakkar mikið til að koma saman með landsliðshópnum. „Það er mjög gaman að vera komin aftur í landsliðshópinn. Þetta er reyndar ennþá bara 22 leikmanna hópur og ég veit ekki hvaða hlutverk ég mun fá eftir að æfingar hefjast. Mig langar auðvitað mjög að vera í hópnum sem mætir Spánverjum en ég veit það vel að það er ekki víst að ég verði í lokahópnum. Það eru ennþá góðar vinkonur mínar í liðinu og svo eru að koma upp ungir og mjög spennandi leikmenn. Ég er mjög spennt fyrir því að snúa aftur með landsliðinu og langar mjög að taka þátt í þeim uppbyggingarfasa sem liðið er í,“ segir Rut um framhaldið með landsliðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Danski handboltinn Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Fleiri fréttir Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða 75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Andrea snýr heim í Olís-deildina Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Biður Dag afsökunar Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu „Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Sigvaldi kemur inn fyrir Teit Allir trúa á brons í Herning Hjartað og andinn muni skila sigri Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Gísli valinn í úrvalslið EM „Held og vona að Ísland taki bronsið“ Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn Sigvaldi skráður til leiks Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Sjá meira