Barist í kvöld um tvö síðustu sætin í úrslitakeppninni í pílu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2019 16:15 Gerwyn Price þarf að vinna í kvöld og treysta á úrslit í öðrum leikjum. Getty/Dean Mouhtaropoulos
Lokaumferð deildarkeppni úrvalsdeildarinnar í pílu fer fram í kvöld í Leeds og er að sjálfsögðu sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Eftir fimmtán umferðir ræðst það endanlega á þessu sextánda kvöldi tímabilsins hvaða fjórir pílarar keppa um úrvalsdeildartitilinn í ár. Þarna eru samankomnir þeir bestu í heimi. Útsending á Stöð 2 Sport 2 hefst klukkan 18.00 í kvöld.PERMUTATIONS! With four players vying for the final two Play-Off spots, check out the results needed for each player to make it to The O2.https://t.co/mtc0LLagc2https://t.co/TVwJkupkajpic.twitter.com/N0fFPUZrJ8 — PDC Darts (@OfficialPDC) May 15, 2019Fjórir efstu pílararnir komast í úrslitakeppnina og tvö sæti eru þegar skipuð. Englendingurinn Rob Cross og Hollendingurinn Michael van Gerwen voru fyrstir til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Rob Cross var sá fyrsti en hann er efstur í deildinni með 22 stig. Deildarkeppnin hefur líklega aldrei verið eins jöfn og spennandi í fimmtán ára sögu úrvalsdeildarinnar en fjórir eiga enn möguleika á að tryggja sig inn í úrslitakeppnina með sigri í kvöld. Þetta eru þeir James Wade, Mensur Suljovic, Daryl Gurney og Gerwyn Price. Tveir af átta eru þegar úr leik en það eru Michael Smith og Peter Wright. Raymond van Barneveld datt síðan úr keppni eftir níu umferðir."I'm going to keep being me and play my own game." Gerwyn Price has vowed not to change his playing style heading into Thursday's crucial Unibet Premier League clash with Peter Wright in Leeds.https://t.co/4t2cD6qBrmhttps://t.co/TVwJkupkajpic.twitter.com/tLGB2eF3j2 — PDC Darts (@OfficialPDC) May 15, 2019„Í upphafi keppninnar hefði ég alltaf þegið það að vera í þessari stöðu en ef þú hefðir spurt mig fyrir fimm til sex vikum þá hefði ég verið ósáttur með að missa þetta út úr mínum höndum,“ sagði Gerwyn Price. Hann er í sjötta sæti og stigi frá fjórða sætinu eftir jafntefli við Daryl Gurney í Sheffield í síðustu viku. „Leikurinn í síðustu viku skipti miklu máli fyrir mig. Ég vissi að ég þyrfti að vinna eða ná að minnsta kosti jafntefli og ég átti að vinna hann. Það féll ekki með mér og ég þarf bara að halda áfram,“ sagði Gerwyn Price. „Ef ég kemst ekki áfram þá hefur þetta samt verið frábært ár fyrir mig í úrvalsdeildinni en ég er bara búin að gefa of mörg jafntefli,“ sagði Price en jafntefli hans fyrir viku síðan var hans sjötta í fimmtán leikjum.THE RACE FOR FIRST PLACE! Rob Cross just needs to match Michael van Gerwen's result to become just the third person to win the league phase... The league winner has then gone on to lift the title 71.4% of the time... will we have a new Premier League champion? pic.twitter.com/pCFZZ0HOX7 — PDC Darts (@OfficialPDC) May 15, 2019Norður Írinn Daryl Gurney viðurkennir að hann hafi verið heppnina með sér í leiknum á móti Price í síðustu viku. „Þetta var stærsti leikurinn minn á tímabilinu. Hann var mun betri en ég og hefði líklega átt skilið að vinna. Ég gerði vel í að ná í jafntefli,“ sagði Gurney. „Þetta verður mjög áhugavert í kvöld. Þetta verður erfiður leikur fyrir mig á móti Michael Smith sen er sofandi risi eins og er. Hann er líklega með mestu náttúrulegu hæfileikana af öllum á mótaröðinni,“ sagði Daryl Gurney. Gerwyn Price mætir Peter Wright í kvöld en hann þarf sigur og svo að treysta á það að Mensur Suljovic eða Daryl Gurney vinni ekki sína leiki. Suljovic mætir Michael van Gerwen en Gurney spilar við Michael Smith.| A huge week of sport in Leeds continues tomorrow with @OfficialPDC’s @Unibet Premier League Darts at the @fdarena! See the likes of van Gerwen, Cross and Wright with tickets on sale now! — Leeds United (@LUFC) May 15, 2019Leikir kvöldsins: Gerwyn Price - Peter Wright Daryl Gurney - Michael Smith Michael van Gerwen - Mensur Suljovic James Wade - Rob CrossStaðan fyrir lokaumferðina: 1. Rob Cross 22 stig 2. Michael van Gerwen 21 stig 3. James Wade 18 stig 4. Mensur Suljović 17 stig 5. Daryl Gurney 17 stig 6. Gerwyn Price 16 stig 7. Michael Smith 10 stig 8. Peter Wright 9 stig
Íþróttir Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Sjá meira