Handbolti

Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Pétursson er að klára samning hjá HSÍ en búist er við tíðindum af samningsmálum hans á næstunni.
Arnar Pétursson er að klára samning hjá HSÍ en búist er við tíðindum af samningsmálum hans á næstunni. vísir / ívar

Samningur Arnars Péturssonar, landsliðsþjálfara kvenna í handbolta, rennur út eftir komandi Evrópumót. Hann segist vonast eftir nýjum samningi frá sambandinu og formaður HSÍ gaf því undir fótinn að yfirlýsingar væri að vænta varðandi framhaldið.

Arnar hefur stýrt liðinu frá árinu 2019 og liðið er á leið á sitt fjórða stórmót í röð undir hans stjórn. Hann var spurður að því á fundinum hvort það væri rétt að samningur hans væri að renna sitt skeið og hvort þetta yrði þá jafnframt hans síðasta stórmót með liðið.

„Ég vona ekki,“ sagði Arnar léttur áður en Jón Halldórsson, formaður HSÍ, tók við boltanum.

„Það er búin að eiga sér stað ákveðin vinna hjá HSÍ að undanförnum misserum og við erum að vinna hörðum höndum að því að skoða framtíð íslensks kvennalandsliðs,“ segir Jón bætir við:

„Það er búið að ganga vel hjá Arnari, liðið er á hárréttri leið. Svo það styttist í að það komi fréttir frá okkur í þeim efnum,“ segir formaðurinn Jón enn fremur.

Vegferðin heldur áfram

Arnar greip þá orðið á ný og mátti greina á hans tali, líkt og Jóns, að allt stefni í það að hann haldi áfram í landsliðsþjálfarastöðunni.

„Við erum á leiðinni á fjórða stórmótið í röð sem er sögulegt. Ég held að við séum öll glöð með það sem við erum búin að vera að gera. En ég held við lítum á það þannig að við séum að taka ákveðin skref á vegferðinni sem við erum á. Henni er hvergi nærri lokið,“

„Við sem hópur lítum á þetta mót sem gott skref og góða vörðu og undirbýning fyrir það sem koma skal. Í apríl koma gríðarlega mikilvægir leikir í undankeppni fyrir næsta stórmót sem við erum öll með bakvið eyrað,“

„Við erum að fara á þetta mót með það fyrir augum að gera vel. Við spilum tvo æfingaleiki við Svía og erum svo að mæta þremur þjóðum sem hafa á undanförnum árum verið á topp 10 í Evrópu. Við ætlum að sýna það að við séum að nálgast þessi lið en líka að hafa í huga hvað bíður okkar svo. Þetta er eitt skref af mörgum og vegferðin heldur áfram,“ segir Arnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×