Segir tillögu stjórnlagaráðs ítarlegri og ákveðnari Hallgerður Kolbrún E Jónsdóttir skrifar 11. maí 2019 12:31 Gísli Tryggvason, lögmaður og fyrrum stjórnlagaráðsmaður. Fréttablaðið/Anton Brink
Formenn stjórnmálaflokkanna birtu í gær tillögur að nýjum stjórnarskrárákvæðum sem varða umhverfisvernd og nýtingu náttúruauðlinda. Um er að ræða breytingar á tillögum stjórnlagaráðs sem vann að tillögu að nýrri stjórnarskrá Íslands og birt var árið 2011. Ný tillaga gerir nokkrar breytingar á orðalagi sem fela í sér mun rýmri túlkun á ákvæðunum. Í samtali við fréttastofu sagði Gísli Tryggvason, lögmaður sem sat í stjórnlagaráði, að tillaga stjórnlagaráðs hafa verið mun ítarlegri og ákveðnari að mörgu leyti. „Það helsta sem vantar í nýtt stjórnarskrárfrumvarp um nýtingu náttúruauðlinda er að nýting skuli veitt gegn fullu gjaldi en í frumvarpi formanna stjórnmálaflokkanna segir aðeins að með lögum skuli kveða á um gjaldtöku fyrir heimildir til nýtingar í ábótaskyni. Með því getur Alþingi samþykkt mjög lágt gjald og hægt er að ákveða undirverð um sameiginlega nýtingu auðlinda. Þetta hefur verið gert í áratugi til skaða við land og þjóð.“Auðlindir hafsins Gísli segir að enn fremur þyrfti að tiltekinn tíma sem nýtingarréttur væri veittur ætti að vera hóflegt, en sagði stjórnlagaráð ekki hafa gengið svo langt að ákveða fjölda ára í tillögu sinni þar sem tímabilið gæti verið mismunandi fyrir mismunandi auðlindir. Í annarri málsgrein í tillögu stjórnlagaráðs sé einnig tekið fram hvaða náttúruauðlindir falli undir þessi lög, svo sem auðlindir hafs, en kvótahafar hafi löngum haldið því fram að þeir hafi einhverskonar eignarrétt á auðlindinni sem varinn sé af stjórnarskrá. Líta eigi á kvóta af fiskveiðum sem afnotarétt sem borga eigi fullt gjald fyrir og líta eigi á sem leigu en ekki skatt. „Almannaþjónusta mun aldrei verða almennileg fyrr en fullt gjald verður tekið fyrir auðlindir í þjóðareigu,“ sagði Gísli. Hann lýsir undrun sinni yfir því að enn sé ekki búið að taka tillögu að stjórnarskrá í gildi sem aukinn meirihluti íslensku þjóðarinnar lýstu stuðningi yfir. Slík framganga við kjósendur myndi ekki viðgangast í öðrum löndum.Samanburður á tillögu Stjórnlagaráðs að 34. grein og tillögu formanna stjórnmálaflokkanna að 34. grein sem varðar nýtingu náttúruauðlinda. Rauðletruð eru atriði sem ekki er að finna í nýrri tillögu.Þjóðareign samkvæmt stjórnarskrá Í greinargerð sem fylgdi tillögu stjórlagaráðs kemur fram: „Í 2. mgr. eru talin upp dæmi um helstu tegundir auðlinda í þjóðareigu, svo sem nytjastofna í hafinu, aðrar auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu, vatns- og virkjunarréttindi og jarðhita- og námaréttindi. Þessi upptalning er í samræmi við athugasemdir þær sem fylgdu frumvarpi dr. Gunnars Thoroddsen 1983 nema hér er kveðið á um að einnig þessar auðlindir skuli vera í þjóðareign samkvæmt stjórnarskrá frekar en samkvæmt ákvörðun Alþingis. Við bætist ákvæði um að með lögum megi kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar. Hér er t.d. átt við hugsanlega olíufundi eða málma djúpt undir hvort heldur í almenningum eða einkajörðum. Upptalningunni er ekki ætlað að vera tæmandi. Til dæmis er ekki tekin afstaða til þess hversu fara skuli með villta lax- og silungsstofna sem ganga úr sjó í ár á einkajörðum. Í því felst sú afstaða að Alþingi skuli kveða á um þau mál.“ Samanburður á tillögu stjórnlagaráðs að 33. grein og tillögu formanna stjórnmálaflokkanna að sömu grein. Greinin varðar umhverfisvernd. Rauðletruð eru atriði sem finnast ekki í hinni tillögunni.Í greinargerð sem fylgdi 33. grein í tillögu stjórnlagaráðs stendur: „Sérstök grein um vernd náttúrunnar í stjórnarskrá er löngu tímabær og hefur átt sér langan aðdraganda. [...] Stjórnlagaráð hafði til hliðsjónar einróma ákall Þjóðfundar, stjórnlaganefndar, fjölmargra fulltrúa ráðsins sjálfs og margvíslegra hagsmunasamtaka. [...] Ljóst er að ákvæði um umhverfi og náttúru hafa á undanförnum árum ratað í stjórnarskrár æ fleiri erlendra ríkja, og verða ítarlegri og afdráttarlausari. Skilningur á mikilvægi umhverfis fyrir heilbrigði og afkomu mannkyns fer því vaxandi. Ákvæði fjalla yfirleitt um réttindi núlifandi og komandi kynslóða og hefur gætt tilhneigingar til að setja þau meðal mannréttindaákvæða í stjórnarskrám.Nauðsyn aukinnar verndar Á þjóðfundi var mjög rætt um náttúru Íslands og þar komu fram sterk viðhorf um nauðsyn aukinnar verndar og sjálfbærni við nýtingu auðlinda og náttúrugæða af öllu tagi til að ekki yrði gengið á rétt náttúrunnar og komandi kynslóða á Íslandi. Í tillögum stjórnlaganefndar var skylda einnig lögð á herðar almennings með því að kveða á um að hann skyldi „ganga vel um og virða náttúruna“. Er sú hugsun að réttindum fylgi skyldur og ábyrgð raunar rauður þráður í störfum Stjórnlagaráðs og var talið að afar mikilvægt væri að árétta þá hugsun strax í byrjun ákvæðis tengdu umhverfi og náttúru Í 3. mgr. er fjallað um sjálfbæra nýtingu á náttúruauðlindum og jafnrétti kynslóðanna. Þar er réttur náttúrunnar sjálfur tilgreindur.“
Alþingi Fréttaskýringar Stjórnarskrá Tengdar fréttir Leggja fram tillögu að nýju auðlindaákvæði í stjórnarskrá: Auðlindir náttúru landsins tilheyri íslensku þjóðinni Auðlindir náttúru landsins tilheyra íslensku þjóðinni samkvæmt tillögu að breytingu á stjórnarskrá landsins. Einnig er lagt til að enginn geti fengið varanleg afnot af auðlindunum og gjald skuli tekið af nýtingu í ábataskyni. 10. maí 2019 19:24 Tillaga um nýtt auðlindaákvæði „yfirgengilegt hneyksli“ Þorvaldur Gylfason lét í ljós óánægju sína með útspilið á Facebook-síðu sinni í kvöld. 10. maí 2019 23:25 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira
Leggja fram tillögu að nýju auðlindaákvæði í stjórnarskrá: Auðlindir náttúru landsins tilheyri íslensku þjóðinni Auðlindir náttúru landsins tilheyra íslensku þjóðinni samkvæmt tillögu að breytingu á stjórnarskrá landsins. Einnig er lagt til að enginn geti fengið varanleg afnot af auðlindunum og gjald skuli tekið af nýtingu í ábataskyni. 10. maí 2019 19:24
Tillaga um nýtt auðlindaákvæði „yfirgengilegt hneyksli“ Þorvaldur Gylfason lét í ljós óánægju sína með útspilið á Facebook-síðu sinni í kvöld. 10. maí 2019 23:25