Með eitt prósent í Kviku Kristinn Ingi Jónsson skrifar 5. júní 2019 08:45 Kvika banki á tíu prósenta hlut í Incrementum. Fréttablaðið/GVA
Fjárfestingarfélagið Incrementum, sem var stofnað fyrr á árinu af þeim Ívari Guðjónssyni, Baldvin Valtýssyni og Smára Rúnari Þorvaldssyni, er komið í hóp stærstu hluthafa Kviku banka með tæplega 1,1 prósents hlut. Miðað við núverandi gengi hlutabréfa í fjárfestingarbankanum er hluturinn metinn á um 230 milljónir króna. Samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa Kviku, dagsettum 30. maí, er fjárfestingarfélagið, sem er með vel á annan milljarð króna í hlutafé, tuttugasti stærsti hluthafi bankans með 1,08 prósenta hlut. Hlutabréf í bankanum, sem var skráður á aðalmarkað Kauphallarinnar í lok marsmánaðar, hafa hækkað um 35 prósent í verði það sem af er árinu. Eins og greint var frá í Markaðinum í síðasta mánuði hóf Incrementum starfsemi í vor en félagið mun fjárfesta í skráðum félögum í Kauphöllinni. Hluthafahópurinn samanstendur af fjársterkum einkafjárfestum og Kviku banka en eignarhlutur bankans í félaginu nemur tæplega tíu prósentum. Stofnendurnir þrír eru meðal annars eigendur að ráðgjafarfyrirtækinu Akrar Consult en þeir störfuðu allir saman hjá Landsbankanum á árunum fyrir fall fjármálakerfisins.
Birtist í Fréttablaðinu Íslenskir bankar Mest lesið Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Neytendur Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Sjá meira