Landsréttur sneri við þriggja ára nauðgunardómi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júní 2019 15:59 Dómur var kveðinn upp í Landsrétti í dag. Vísir/Hanna
Landsréttur sýknaði í dag karlmann af ákæru um kynferðisbrot gegn konu í október 2017. Maðurinn hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness í ágúst 2018 en áfrýjaði dómnum til Landsréttar. Taldi Landsréttur ósamræmi í vitnisburði konunnar og ekki væri hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hefði brotið gegn konunni. Manninum var gefið að sök að hafa haft samræði og önnur kynferðismök við konuna, gegn hennar vilja með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Var hann sagður hafa gripið í hár hennar og þvingað hana til að hafa við sig munnmök með því að þrýsta framan á háls hennar, taka svo niður buxur hennar og reyna að hafa við hana samræði í endaþarm og leggöng. Átti hann í framhaldinu að hafa gripið aftur í hár hennar og þvingað hana til að hafa við sig munnmök í annað sinn.Þekktust ekki Við skýrslutöku sagði maðurinn að rekja mætti samskipti hans við konunnar til þess að hún hefði kysst hann fyrirvaralaust inni á skemmtistað. Samkvæmt framburði mannsins var það konan sem átti frumkvæði að öllum samskiptum þeirra en eftir að staðnum var lokað sagðist hann hafa hitt hana að nýju fyrir utan skemmtistaðinn. Þar hafi hún ítrekað beðið hann um að koma með sér heim. Það hafi hann hins vegar ekki viljað gera en að hann væri tilbúinn til þess að eiga við hana kynferðisleg samskipti í nágrenni við skemmtistaðinn. Þau hafi farið bak við hús fyrir aftan skemmtistaðinn þar sem konan hafi átt frumkvæði að munnmökum. Því næst hafi hún fært sig aftur fyrir kyrrstæðan húsbíl þar sem þau hafi haft samfarir í stutta stund áður en að konan hafi sagt systur sína vera að leita sér og yfirgaf hún svæðið. Sagði hann að kynferðisleg samskipti þeirra hafi farið fram með samþykki konunnar. Fyrir dómi sagðist maðurinn hins vegar hafa haft frumkvæði að samskiptum þeirra eftir að hafa veitt henni athygli inn á skemmtistaðnum. Þau hafi dansað saman og kysst en þegar skemmtistaðnum lokaði hafi þau farið bak við skemmtistaðinn líkt og hann greindi frá við skýrslutöku.Of ágengur við munnmök Fyrir dómi sagðist konan hafa verið úti að skemmta sér umrætt kvöld með systur sinni og vinum. Sagði hún að maðurinn hefði komið til sín á dansgólfinu, leitt sig að karlaklósettinu og kysst hana. Eftir lokun skemmtistaðarins hafi þau hist fyrir utan skemmtistaðinn og gengið saman frá skemmtistaðnum. Þegar systir konunnar hafi kallað í átt að þeim hafi maðurinn tekið í hönd hennar og greikkað sporið. Fylltist hún þá áhyggjum og varð hún samferða tveimur strákum til baka til systur sinnar. Nokkru síðar sagðist hún hins vegar hafa gengið sömu leið til baka og hitt manninn aftur og eftir nokkra stund hafi komið til tals að þau færu saman í partý í leigubíl ásamt félögum mannsins. Á göngu í leigubílinn hafi konan hins vegar orðið vör við það að félagarnir voru ekki lengur með í för. Hafi maðurinn þá byrjað að kyssa konunna og taldi hún að hún hefði kysst hann til baka. Greindi konan frá því að í kjölfarið hafi maðurinn tekið í handlegg hennar og dregið hana inn á næstu lóð og að hvítri sendiferðabifreið sem þar stóð. Þegar þangað kom hefði maðurinn tekið um hár brotaþola og togað hana niður á hnén. Svo hefði hann ýtt á háls brotaþola til þess að opna munn hennar. Hann hefði því næst tekið lim sinn út og stungið honum í munn brotaþola. Þegar maðurinn hefði verið farinn að ýta lim sínum of langt inn kvaðst hún hafa reynt að stoppa hann með því að ýta í læri hans en án árangurs. Fram kom hjá konunni að hún hefði í fyrstu ekki verið munnmökunum mótfallin en þegar hann var orðinn of ágengur hefði hún ekki viljað þau lengur.Hringdu strax á lögreglu Því næst hafi maðurinn tekið bol hennar upp og girt niður um hana. Hann hefði síðan reynt að setja lim sinn inn í konuna en ekki tekist. Þar sem konan var of lágvaxinn hefði honum ekki tekist ætlunarverk sitt. Hann hefði því sest niður á aftanverða bifreiðina og reynt að láta konuna fara ofan á. Sagðist hún þá hafa sagt nei. Hann hafi samt sem áður haldið áfram að toga í konuna sem ítrekað hefði sagt nei við hann á ensku. Við það hefði maðurinn orðið pirraður. Þá hafi hann togað konuna aftur niður á hárinu og sett lim sinn í munn hennar að nýju. Maðurinn hefði þá verið ákafari en í fyrra sinnið. Sagðist hún hafa reynt að standa upp og fara. Hún hefði einnig freistað þess að bíta í lim mannsins en vör hennar lent á milli og hann því ekki fundið fyrir bitinu. Að þessu loknu hafi maðurinn ýtt við konunni með þeim afleiðingum að hún missteig sig og skall með höfuðið í framenda bílsins. Hitti hún systur sína aftur og hringdu þær á lögreglu sem kom fljótlega á staðinn.Stuðst við öryggis- og búkmyndavélar Fyrir dómi kom fram í máli lögreglumanna sem komu á vettvang, sem og annarra vitna, að konan hefði strax sakað manninn um nauðgun og segir í dómi héraðsdóms að á upptöku úr búkmyndavél lögreglumanns megi sjá og heyra konuna lýsa atvikum, hafi framburður hennar verið skýr og afgerandi um að ákærði hafi brotið gegn henni. Þá var lagt fram vottorð sálfræðings þar sem kom fram að frásögn konunnar hafi verið trúverðug og samkvæm sjálfum sér. Hún hafi í viðtölum greint frá áfallastreitueinkennum eftir meint kynferðisbrot ásamt kvíða-, þunglyndis- og streitueinkennum og svefnvanda. Segir vottorðsgjafi sálræn einkenni hennar í kjölfar áfallsins samsvara einkennum sem þekkt séu hjá fólki sem upplifað hafi alvarleg áföll eins og líkamsárás, nauðgun, stórslys eða hamfarir og þótti héraðsdómi að vottorð sálfræðingsins styddi framburð hennar í málinu. Þá voru einnig lögð fram myndskeið úr eftirlitsmyndavélum þar sem sjá mátti manninn hraða för sinni af vettvangi eftir að leiðir hans og konunnar skildu. Segir í dómi að af þessu megi ráða af maðurinn hafi viljað koma sér sem fyrst af vettvangi. Þá hafi framburður konunnar verið stöðugur og að hún hafi aldrei hvikað frá frásögn sinni um að maðurinn hafi beitt hana ofbeldi og nauðung. Héraðsdómur Reykjaness mat framburð mannsins ótrúverðugan og ekki fá viðhlítandi stoð í framburði né gögnum málsins. Var hann því sakfelldur í héraði. Landsréttur sagði hins vegar að framburður konunnar um fyrri munnmök hennar og mannsins væri ekki skýr um hvort þau hefðu farið fram gegn vilja hennar. Þá hefði framburður hennar um atvik eftir þau munnmök ekki næga stoð í framlögðum gögnum til að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum væri gefið sök.Var maðurinn því sýknaður í Landsrétti af ákærunni.
Dómsmál Tengdar fréttir Öryggis- og búkmyndavélar í lykilhlutverki í nauðgunardómi Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt rúmenskan ríkisborgara í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu aðfaranótt 8. október á síðasta ári. Myndefni úr öryggismyndavélum og búkmyndavél lögreglu hjálpuðu til við sakfellingu mannsins. 4. september 2018 12:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Öryggis- og búkmyndavélar í lykilhlutverki í nauðgunardómi Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt rúmenskan ríkisborgara í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu aðfaranótt 8. október á síðasta ári. Myndefni úr öryggismyndavélum og búkmyndavél lögreglu hjálpuðu til við sakfellingu mannsins. 4. september 2018 12:00