Lífið

Krakk­arn­ir úr Strang­er Things hrædd­u líf­tór­un­a úr grun­laus­um að­dá­end­um

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ljóst er að mörgum hefði brugðið við hrekk sem þennan.
Ljóst er að mörgum hefði brugðið við hrekk sem þennan. YouTube/Skjáskot
Þættina Stranger Things þarf vart að kynna fyrir sjónvarpsáhugafólki landsins en þættirnir hafa farið sigurför um heiminn. Stór hluti leikarahópsins eru á unglingsaldri en þættirnir segja einmitt frá hópi ungmenna sem komast oft í hann krappan í baráttu við ýmis ónáttúruleg öfl.

Á dögunum brugðu krakkarnir úr þáttunum á leik í tilefni af því að þriðja sería Stranger Things kemur út á Netflix innan skamms, nánar til tekið þann 4. júlí næstkomandi, og fengu í lið með sér Jimmy Fallon, einn frægasta spjallþáttastjórnanda Bandaríkjanna.

Krakkarnir ákváðu að hrekkja nokkra grunlausa aðdáendur þáttanna með því að þykjast vera vaxmyndir á nýrri Stranger Things-sýningu á hinu fræga vaxmyndasafni Madame Tussauds í New York. Þegar aðdáendurnir settust niður til þess að láta taka af sér myndir með „vaxmyndirnar“ í bakgrunni stukku krakkarnir til og skutu aðdáendunum sannarlega skelk í bringu.

Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér að neðan.





Stranger Things hafa eins og áður sagði fengið jákvæðar umsagnir áhorfenda og mikið lof frá gagnrýnendum.

Þáttaröðin er hugverk Duffer-bræðranna Matt og Ross og lýst sem yfirnáttúrlegum vísindaskáldskap með hrollvekjuívafi.

Sögusviðið er bærinn Hawkins árið 1983 en Duffer-bræðurnir hafa sagt í viðtölum að þættirnir sé virðingarvottur þeirra til bandarískra dægurmenningar á níunda áratug síðustu aldar.

Með aðalhlutverk í þáttunum fara þau Finn Wolfhard, Millie Bobby Brown, Gaten Matarazzo, Caleb McLaughlin, Noah Schnapp og Sadie Sink, en þeim bregður einmitt öllum fyrir í myndbandinu hér að ofan. Meðalaldur þeirra sexmenninga er rúmlega 15 ár.

Meðal annarra leikara sem sjá má bregða fyrir í þáttunum eru stórleikkonan Winona Ryder og hörkutólið David Harbour.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.