Longstaff gæti orðið Manchester United leikmaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2019 11:30 Sean Longstaff á æfingu með Newcastle United. Getty/Serena Taylor
Það er augljóst að aðalmarkmið Manchester United á félagsskiptamarkaðnum í sumar er að finna unga framtíðarleikmenn sem hægt að er að rækta og móta á Old Trafford á næstu árum. Það þarf allsherjar tiltekt í leikmannahópi Manchester United og mikið átak til að koma félaginu aftur upp í hóp bestu liða Englands.Ole Gunnar Solksjaer is working on reshaping #MUFC's squad and it looks like he's keen to bring in Newcastle midfielder Sean Longstaff. More: https://t.co/mpXvl3sCrxpic.twitter.com/aFKmdFCAq5 — BBC Sport (@BBCSport) June 27, 2019Manchester United er að ganga frá kaupunum á bakverðinum Aaron Wan-Bissaka frá Crystal Palace og hafði áður keypt Daniel James frá Swansea fyrr í þessum mánuði. Nú horfir Manchester United norður til Newcastle en BBC segir að Solskjær og félagar hafi áhuga á miðjumanninum Sean Longstaff. Sean Longstaff er 21 árs gamall eins og þeir Aaron Wan-Bissaka og Daniel James. Sean Longstaff hefur stimplað sig vel inn á St James' Park eftir að hafa fengið fyrsta tækifærið sitt á svipuðum tíma og Ole Gunnar Solskjær tók við liði Manchester United eða í desember 2018. Longstaff kláraði þó ekki tímabilið því að hann datt út vegna hnémeiðsla. Ole Gunnar Solskjær er greinilega að horfa til vinnuaðferða Sir Alex Ferguson en Solskjær var sjálfur 23 ára gamall og nær óþekktur þegar Sir Alex náði í hann til Molde árið 1996.Manchester United are believed to have pulled out of the running to sign Leicester and England defender Harry Maguire after being told the 26-year-old will cost £100m. Latest gossip https://t.co/tR6X1iVRMk#bbcfootball#MUFC#ManUtd#LCFC#ENGpic.twitter.com/XjnOhE4fv5 — BBC Sport (@BBCSport) June 26, 2019Auk þess að elta þessa framtíðarleikmenn þá er Manchester United að reyna að kaupa reyndan miðvörð. Harry Maguire hefur verið nefndur en það lítur út fyrir að Leicester City vilji bara fá of mikið fyrir hann. Á sama tíma er Manchester United að reyna að losa sig við Romelu Lukaku en það er ekki enn ljóst hvort ítalska félagið Internazionale hefur hreinlega efni á honum.
Enski boltinn Mest lesið Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Handbolti Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Handbolti Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest Körfubolti Leik lokið: Stjarnan - Keflavík 116-98 | Keflvíkingar kafsigldir í Garðabæ Körfubolti Uppgjör: Ármann - Valur 94-77 | Frábær sigur Ármanns á lánlausum Valsmönnum Körfubolti „Hann hefði bara átt að kyngja þessu, vera stór og halda áfram úti“ Körfubolti Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Handbolti EM í dag: Sushi og sjónskekkja í Svíþjóð Handbolti Fleiri fréttir Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Mætir Liverpool en fær gæsahúð þegar hann heyrir „You'll Never Walk Alone“ Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Dagskráin í dag: Liverpool í bikarnum og síðasta lausa sætið í NFL Solskjær ekki lengur líklegastur Fletcher segir leikmenn Man. Utd viðkvæma Veik von Man. Utd um titil úr sögunni Sjá meira