Wijnaldum segir Liverpool í stöðugri framþróun og ræddi magnaðan Van Dijk Anton Ingi Leifsson skrifar 24. júní 2019 11:00 Wijnaldum lyftir Evrópubikarnum. vísir/getty
Georginio Wijnaldum, miðjumaður Liverpool, segir að sigurleikirnir á síðasta tímabili, í leikjum sem voru liðinu erfiðir, lýsi framþróun félagsins. Liverpool hefur ekki unnið marga stóra titla undanfarin ár en náði í gullið í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð. Þeir enduðu svo einu stigi á eftir City í úrvalsdeildinni. Hollendingurinn segir að félagið sé í stöðugri framþróun og erfiðu leikirnir á síðustu leiktíð þar sem liðið hafði þrjú stig séu leikir sem félagið hafði ekki unnið fyrir einhverjum árum. „Við höfum þróast mikið. Þú getur séð það, ekki bara á úrslitunum, heldur einnig hvernig við erum að spila. Við bættum okkur á síðustu leiktíð,“ sagði Wijnaldum við heimasíðu Liverpool. „Við byrjuðum mjög vel og unnum erfiða leiki sem höfðu verið okkur erfiðir. Við lærðum mikið á síðustu leiktíð og allir leikmennirnir eru betri leikmenn en þeir voru áður.“ Van Dijk er samherji Wijnaldum í Liverpool og hollenska landsliðinu. Van Dijk var stórkostlegur á síðustu leiktíð og Wijnaldum segir að hann sé alltaf að bæta sig. „Það sem hreif mig mest með Virgil er hans stöðugleiki, hann gerir varla mistök. Hann bætti sig mikið hjá Celtic og Southampton og hjá Liverpool gerði hann það einnig.“ „Leikmennirnir sem spila með honum verða betri; varnarmennirnir við hliðina á honum verða betri, leikmennirnir fyrir framan hann verða betri því þegar þú spilar og veist af honum bakvið þig, þá líður þér vel.“
Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira