„Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 09:01 Bruno Fernandes fagnar marki sínu fyrir Manchester United á móti Roma í Meistaradeildinni í gær. AP/Jon Super Bruno Fernandes átti stóran þátt í dramatískum 3-2 endurkomusigri Manchester United á Roma í Meistaradeildinni í gærkvöldi og hann viðurkenndi sjálfur eftir leikinn að knattspyrnustjórinn Michael Carrick hefði haft rétt fyrir sér að taka hann úr liðinu fyrir að gagnrýna leikaðferð hans í síðasta mánuði.
Fernandes skoraði úr vítaspyrnu og lagði upp jöfnunarmark fyrir Matheus Cunha þegar úrvalsdeildarliðið vann sig til baka eftir að hafa lent 2-0 undir og batt þar með enda á níu leikja hrinu án sigurs. Þetta var besta frammistaða hins 32 ára gamla leikmanns á þessu vonbrigðatímabili og hann sýndi þá frammistöðu sem varð til þess að portúgalski miðjumaðurinn var valinn knattspyrnumaður ársins á Englandi á síðasta tímabili. Bruno Fernandes: Michael Carrick was right to drop me from Man United XI https://t.co/AUQewHBSuk— PortugueseSoccer.com ⚽️ (@PsoccerCOM) November 4, 2026 En eftir að Carrick tók hann úr liðinu gegn Bournemouth í kjölfar gagnrýninna ummæla um leikaðferð stjórans í 4-1 tapi gegn Como sagði Fernandes að stjóri United hefði gert rétt í að aga hann með því að taka hann úr liðinu. „Þetta hefur verið erfitt, það hafa verið miklar vangaveltur í fjölmiðlum,“ sagði Fernandes við Amazon Prime. „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans, við höfum hreinsað andrúmsloftið og eftir það tók stjórinn þá ákvörðun að setja mig á bekkinn vegna þess að ég var ekki að standa mig,“ sagði Fernandes. „Allir héldu að þetta væri refsing fyrir orðin sem ég lét falla. Ef svo var, þá var það rétt. Stjórinn er sá sem tekur ákvarðanirnar,“ sagði Fernandes. „Það breytir ekki trú minni á stjórann, starfsliðið og hvern einasta leikmann í þessu félagi. Og það breytir ekki markmiði mínu að vinna hvern einasta helvítis leik sem ég á fram undan,“ sagði Fernandes. Staða Carricks sem knattspyrnustjóra hefur verið í hættu þar sem United hefur átt sína verstu byrjun á tímabili síðan 1986 og aðeins unnið einn leik í úrvalsdeildinni hingað til. En Fernandes hafnaði því að sigurinn á Roma myndi hjálpa til við að bjarga starfi Carricks. „Við þurfum ekki að bjarga starfi neins. Félagið þurfti á þessum sigri að halda, leikmennirnir þurftu á þessum sigri að halda. Við höfum lagt svo hart að okkur til að komast út úr þessari stöðu saman,“ sagði Fernandes.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester United Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Sjá meira