Fótbolti

Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með

Sindri Sverrisson skrifar
Kristian Nökkvi Hlynsson fagnar marki sínu í 2-2 jafnteflinu við Frakkland í fyrra í undankeppni HM.
Kristian Nökkvi Hlynsson fagnar marki sínu í 2-2 jafnteflinu við Frakkland í fyrra í undankeppni HM. vísir/Vilhelm

Kristian Nökkvi Hlynsson snýr aftur í íslenska landsliðshópinn í fótbolta eftir meiðsli, fyrir tvo síðustu leikina í Þjóðadeildinni. Albert Guðmundsson er enn frá keppni vegna meiðsla.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari kynnir landsliðshópinn á blaðamannafundi klukkan 13:15 í beinni útsendingu á Vísi.

Albert meiddist snemma í síðustu landsleikjatörn og er áfram frá keppni.

Miðvörðurinn öflugi Daníel Leó Grétarsson, sem verið hefur frá keppni með sínu félagsliði af persónulegum ástæðum, er á sínum stað í landsliðshópnum.

Ísland mætir Búlgaríu í Plovdiv eftir rúma viku, föstudaginn 13. nóvember, og tekur svo á móti Lúxemborg mánudaginn 16. nóvember í lokaleik riðlakeppni Þjóðadeildarinnar.

Ísland er efst í sínum riðli í C-deildinni með 8 stig, Eistland er með 6, Búlgaría 4 og Lúxemborg 3. Efsta liðið fer upp í B-deild og liðið í 2. sæti í umspil um sæti í B-deild en hin liðin leika í C-deild á næstu leiktíð þegar D-deild verður jafnframt lögð niður.

Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir Ísland að vinna riðilinn heldur gæti einnig skipt máli að enda með fleiri stig en önnur lið sem vinna sinn riðil í C-deildinni, upp á varaleið í EM-umspil að gera. Ísland er sem stendur með lægri stigafjölda en öll hin þrjú liðin sem eru efst í riðlum C-deildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×