Lífið

Erfitt að tengjast Trump í gegnum máginn og svil­konuna

Sylvía Hall skrifar
Joshua Kushner og Karlie Kloss, til vinstri, eiga þó í góðum samskiptum við þau Ivönku Trump og Jared Kushner.
Joshua Kushner og Karlie Kloss, til vinstri, eiga þó í góðum samskiptum við þau Ivönku Trump og Jared Kushner.
Fyrirsætan Karlie Kloss tjáði sig um tengsl sín við Jared Kushner, einn nánasta ráðgjafa Donald Trump Bandaríkjaforseta og eiginmann Ivönku Trump, í viðtali við breska Vogue. Kloss er gift Joshua Kushner og er því mágkona Jared Kushner.

Kloss segir sig og eiginmann sinn vera mjög frjálslynd og eiga þau ekki mikla samleið með stjórnmálum Trump. Hún reyni að einblína á þau sameiginlegu gildi sem hún og eiginmaður hennar deila frekar en að eyða orku í stjórnmál mágs síns og svilkonu.

„Þetta hefur verið erfitt,“ sagði Kloss um tengslin. Hún hefur áður upplýst um að hún hafi sjálf kosið Hillary Clinton í forsetakosningunum árið 2016 og Joshua, sem hefur alla tíð verið Demókrati, ákvað að kjósa ekki tengdaföður bróður síns.

Joshua hefur einnig tjáð sig um stjórnmálaskoðanir sínar og segir það ekki vera neitt leyndarmál að hann hafi alla tíð stutt Demókrataflokkinn.

„Ég hef stutt stjórnmálaleiðtoga sem hafa sömu gildi og ég. Það er mikilvægt að hafa opin hug og læra af ólíkum skoðunum,“ sagði Joshua í viðtali við Forbes árið 2017.

Bræðurnir og eiginkonur þeirra setja þó ólíkar stjórnmálaskoðanir sínar ekki fyrir sig og sagði Joshua í sama viðtali að þeir bræðurnir væru í daglegum samskiptum. Þá fagnaði Ivanka fréttum af trúlofun Kloss og Kushner árið 2018 og sagðist vera þakklát að eiga hana að sem systur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.